Náttúruminjasafn Íslands

Vísir Aðsendar greinar 21. febrúar 2012 14:15
"Á síðustu dögum hefur athyglisverðri hugmynd um húsnæði Náttúruminjasafns Íslands skotið upp kolli, sem er Perlan á Öskjuhlíð."
Stjórnarmenn í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi skrifar:
Fyrir skömmu sendi Ríkisendurskoðun frá sér skýrslu um Náttúruminjasafn Íslands, stöðu þess og framtíðarhorfur. Í skýrslunni eru áfellisdómar um framkvæmd laga um safnið, ástand þess og starfsumhverfi. Allt er það því miður bæði satt og rétt. Framkvæmd laganna er í skötulíki, fjárveitingar eru snautlegar, húsnæðismálin óviðunandi, safnkosturinn nær allur ótiltækur, sýningar engar, stefnumótun í uppnámi og samvinna við Náttúrufræðistofnun Íslands ekki sem skyldi.
Svona hefur gengið í áraraðir og við lestur skýrslunnar verður ekki séð að embættismenn innan Mennta- og menningarmálaráðuneytisins hafi verið Náttúruminjasafninu hjálplegir. Vonandi verður skýrsla Ríkisendurskoðunar til þess að ráðin verði bót á þessari ömurlegu stöðu.

Náttúruminjasafninu er skv. þar að lútandi lögum ætlað að vera höfuðsafn á borð við Þjóðminjasafn og Listasafn Íslands, og fjárveitingar til þess, stærð þess og staða ætti að vera sambærileg við þessi söfn. Það ætti sem sé að vera í eigin húsnæði með rúmgóða sýningarsali og helst á svipuðum slóðum og hin höfuðsöfnin, þ.e. miðlægt í höfuðborginni. Safninu er ætlað að varpa ljósi á náttúru landsins, nýtingu auðlinda og náttúruvernd, safna náttúrugripum og vera miðstöð þekkingar. Það á að miðla fræðslu um íslenska náttúru til skóla, námsfólks, fjölmiðla og almennings og annast rannsóknir á starfssviði sínu.

Það á einnig að þjóna erlendum ferðamönnum. Því er líka ætlað að að vera miðstöð safnastarfsemi á sínu sviði, vera öðrum náttúruminjasöfnum til ráðuneytis og stuðla að samvinnu þeirra og samhæfingu.
Allt er þetta í samræmi við almennan skilning á höfuðsafni og sýnir löngun til þess að standa jafnfætis öðrum þjóðum á þessu sviði. Ekkert af þessu hefur þó komið til framkvæmda. Fyrir vikið standa Íslendingar að baki öðrum þjóðum í Evrópu og kannski á hnettinum öllum.

Náttúruminjasafnið er afsprengi Hins íslenska náttúrufræðifélags (HÍN) líkt og Náttúrufræðistofnun Íslands. Félagið var stofnað 1889 og megintilgangur þess var að koma á laggir náttúrugripasafni til að glæða áhuga fólks á náttúru landsins og efla rannsóknir á henni. Þetta tókst og félagið kom á fót ágætu sýningar- og vísindasafni sem það rak við góðan orðstír allt fram undir miðja 20. öld. Þá var gert samkomulag við ríkið um að það yfirtæki þennan rekstur, það fékk til sín eigur safnsins, náttúrugripi, bókakost, handrit og skjöl og auk þess drjúga peningaupphæð sem félagsmenn höfðu dregið saman og sett í byggingarsjóð. Á móti lofaði ríkið að reka safnið og sýningar þess og reisa yfir það hús sem sómi væri að. Við þetta var ekki staðið. Sýningarsalur safnsins í Safnahúsinu við Hverfisgötu var aflagður 1960 og safnið þá flutt í bráðabirgðahúsnæði við Hlemm en vorið 2008 voru sýningarnar teknar niður og safngripum pakkað í kassa þar sem þeir eru enn.

Eitt aðalstefnumið HÍN hefur lengi verið að berjast fyrir því að Náttúruminjasafn Íslands rísi af grunni, safn sem sómi íslenskri þjóð, gestum hennar og sérstæðri náttúru landsins.

Í því skyni hefur stjórn félagsins gengið á fund menntamálaráðherra, umhverfisráðherra og borgarstjóra til að þrýsta á um að eitthvað verði gert í málinu. Það heyrir að vísu einkum undir Menntamálaráðuneyti en tengist Umhverfisráðuneyti gegn um Náttúrufræðistofnun Íslands, sem á að vera helsti samstarfsaðili og bakhjarl safnsins. Náttúruminjasafnið tengist einnig Reykjavíkurborg og m.a. hefur lóð fyrir safnið og sérstakt Náttúruhús lengi verið á skipulagskortum í grennd við Norræna húsið í Vatnsmýri. Allsstaðar var stjórninni vel tekið og af miklum skilningi. Ráðherrarnir eru vinstri grænir náttúruverndarsinnar og þekkja vel sögu Náttúruminjasafnsins og aðstæður þess. Borgarstjóri hafði einnig fullkominn skilning á málinu. Öll hétu þau að beita sér í því og samræma krafta sína. En því miður, enn hefur ekkert gerst.
Í haust sem leið birtist grein í Morgunblaðinu eftir Ágúst H. Bjarnason og þar skorar hann á stjórn HÍN að segja upp samningi sínum við ríkið frá 1947 vegna vanefnda og krefja það í leiðinni um þá náttúrugripi, skjöl og handrit sem það fékk í hendur, eða andvirði þeirra, ásamt með byggingarsjóðnum uppreiknuðum. Þetta er sanngirniskrafa en áður en á hana verður látið reyna vill stjórn HÍN sjá hverju skýrsla og tillögur Ríkisendurskoðunar geta skilað. Áfellisdómurinn sem hún birtir kann að brýna Mennta- og menningarmálaráðuneytið til dáða, það þarf að reka af sér, og allri stjórnsýslunni, slyðruorðið. Umræður undanfarinna daga gætu verið upphaf þess.

Íslendingar byggja atvinnu sína og líf í landinu á náttúrugæðum þess. Þau eru undirstaða landbúnaðar, sjávarútvegs, orkuvinnslu og ferðamennsku. Það er hneisa að geta ekki boðið landsmönnum og ferðalöngum upp á vandaðar sýningar og fræðslu í veglegu höfuðsafni um hina dýrmætu náttúru landsins. Náttúruminjasafn við hæfi verður að rísa. Það þarf að starfa í sátt og góðu samstarfi við Náttúrufræðistofnun, Hafró, Veðurstofu og aðrar sambærilegar rannsóknarstofnanir og vera í góðum tengslum við háskólastofnanir landsins. Mennta- og menningarmálaráðuneyti ber að styðja það af heilum hug, ryðja hindrunum úr braut þess og tryggja að fjárveitingarvaldið leggi fram það fé sem nauðsynlegt er til að það geti starfað í anda gildandi laga. Á síðustu dögum hefur athyglisverðri hugmynd um húsnæði Náttúruminjasafns Íslands skotið upp kolli, sem er Perlan á Öskjuhlíð. Það húsnæði kann vel að henta safninu og ber að gaumgæfa þennan kost vel. Ekki þarf að fjölyrða um ágæti staðsetningarinnar í Öskjuhlíðinni og þótt húsnæðið sé ekki skraddarasniðið utan um safn náttúrumuna þá vegur glæsileiki þess það upp og sjóndeildarhringurinn sem umlykur það.

Árni Hjartarson, Esther Ruth Guðmundsdóttir, Ester Ýr Jónsdóttir, Hilmar J. Malmquist, Jóhann Þórsson og Kristinn J. Albertsson

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Náttúruminjasafn Íslands