Glamour

Natacha Ramsay-Levi verður yfirhönnuður Chloé

Ritstjórn skrifar
Eftir að sögusagnir um að núverandi yfirhönnuður Chloé, Clare Waight Keller, væri á förum fóru margir að hugsa hver gæti tekið við af henni. Nú hafa talsmenn Chloé staðfest að Natacha Ramsay-Levi muni taka við stöðunni. 

Natacha hefur seinustu ár starfað sem ein af aðal hönnuðum Louis Vuitton og er talin vera hægri hönd Nicolas Ghesquiére. Fyrsta línan hennar fyrir Chloé mun vera frumsýnd í haust á tískuvikunni í París.

Nú þegar Keller er á förum frá Chloé er talið að hún muni taka við sem yfirhönnuður hjá annaðhvort Burberry eða Celine.  






×