Viðskipti erlent

Nasdaq vístalan aldrei hærri: Er hlutabréfabóla framundan?

ingvar haraldsson skrifar
Nasdaq er með höfuðstöðvar í New York.
Nasdaq er með höfuðstöðvar í New York. nordicphotos/afp
Nasdaq vísitalan sló í gær met frá því í rétt áður netbólan sprakk árið 2000 og hefur aldrei verið hærri.

Við lokun markaða í gær var vísitalan í 5.056 stigum en hún fór lægst í 1.114 stig árið 2002.

Fjöldi tæknifyrirtækja eru í Nasdaq vísitölunni. Vísitalan hefur hækkað mikið með vexti í líftækniiðnaði, aukinni snjallsímasölu, og margföldu virði samfélagsmiðla á borð við Facebook samkvæmt frétt Reuters.

Stephen Massocca, fjárfestir hjá Wedbush Equity Management í San Francisco, telur að hækkun hlutabréfa samfélagsmiðlum sé ekki sjálfbær. Þeir hljóti að hrynja í verði. „Ég veit ekki hvenær það gerist en ég veit að það mun enda illa,“ segir Massocca.

Aðrir greiningaraðilar telja hins vegar líkur á frekari hækkun Nasdaq á næstunni. „Hún hefur möguleika til að hækka meira, ef ekki verða einhverjir ófyrirséðir atburðir sem ég get ekki spáð fyrir um,“ segir Walter Price, fjárfestir hjá AllianzGI Global Technology sjóðnum í San Francisco í viðtali við Reuters.

Price bætir við að um aldamótin hafi fjöldi fyrirtækja verið metin á 200 til 300 faldar tekjur næsta árs. Nú sé allt önnur og staða uppi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×