Lífið

NASA svarar Gwyneth Paltrow vegna meintra heilsuplástra

Kjartan Kjartansson skrifar
Gwyneth Paltrow hefur verið iðin við kolann þegar kemur að því að hagnast á ýmis konar hjávísindum, nú með að reyna að tengja sig við NASA. Athugið, myndin er samsett.
Gwyneth Paltrow hefur verið iðin við kolann þegar kemur að því að hagnast á ýmis konar hjávísindum, nú með að reyna að tengja sig við NASA. Athugið, myndin er samsett. Vísir
Heilsugúrú um allan heim setja daglega fram vafasamar fullyrðingar um ágæti vara af ýmsu tagi. Það er hins vegar ekki á hverjum degi sem bandaríska geimvísindastofnunin NASA sver af sér nokkur tengsl við slíka vöru eins og í tilfelli „heilsuplástra“ sem leikkonan Gwyneth Paltrow mælti með á heilsubloggi sínu.

Paltrow er þekkt fyrir að dreifa alls kyns ráðleggingum sem fáir heilbrigðisstarfsmenn gætu skrifað undir á vefsíðunni Goop. Þannig hefur hún meðal annars mælt með steini sem konur eigi að stinga upp í leggöng til að styrkja vöðva.

Nýlega birtist á síðunni færsla um límmiða sem fyrirtækið Body Vibes selur. Þar er því haldið fram að límmiðarnir séu gerðir úr sömu „leiðandi koltrefjunum sem NASA notar til að fóðra geimbúninga sína svo að hún geti fylgst með lífsmerkjum geimfaranna“, að því er kemur fram í grein Washington Post.

Lýsingin á því hvað miðarnir eiga að gera er enn framandlegri.

„Mannslíkaminn virkar á kjörorkutíðni en dagleg streita og kvíði geta raskað innra jafnvægi okkar, tæmt orkuforða okkar og veikt ónæmiskerfi okkar,“ segir í færslu Goop.

Söluaðilinn heldur því jafnframt fram að límmiðarnir hafi róaandi áhrif og dragi úr streitu og kvíða.

Ekki fylgir sögunni hvort að notendur límmiðanna þurfi að taka þátt í hópknúsi naktir en svona auglýsir Body Vibes þá.Body Vipes
Engar koltrefjar í geimbúningunum

Talsmaður NASA segir hins vegar við Washington Post að engar koltrefjar séu notaðar í geimbúningana. Í frétt Gizmodo sem sagði fyrst frá málinu kom fram að búningarnir séu í raun úr plastefnum, spandexi og öðrum efnum.

Færslunni á Goop og lýsingunni á vefsíðu Body Vibes var breytt í kjölfarið og vísanir til NASA fjarlægðar.

„Við ætluðum okkur aldrei að afvegaleiða neinn,“ sagði í yfirlýsingu frá fyrirtækinu sem hélt því fram að það hefði fengið rangar upplýsingar frá dreifiaðila.

Límmiðarnir eru seldir í tíu stykkja pökkum fyrir sextíu dollara eða í 24 stykkjum fyrir 120 dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×