Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk 30. apríl 2009 04:00
Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni. „Þetta byrjaði á einhverjum misskilningi á netinu. Hún hélt að hún væri að ræða við aðra stúlku á MSN og síðan var hún sökuð um að ljúga upp á einhverja stúlku. Sú þekkir þennan stelpnahóp," segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Stúlkurnar, sem eru úr Hafnar-firði og litlu eldri en fórnarlambið, hittu stúlkuna fyrir nokkrum dögum á matsölustað og réðust þar á hana, en voru stöðvaðar fljótlega. Í gær hringdu þær síðan í hana, þóttust vilja biðja afsökunar og sættast við hana. Í staðinn færðu þær hana upp í Heiðmörk þar sem tvær þeirra hófu að lemja hana. Hún var lamin ítrekað í andlitið. Stúlkan segir að hinar stúlkurnar hafi staðið hjá, nema ein sem hljóp að bíl sem var þar hjá. Drengur sem sat í þeim bíl, og virtist tengdur stúlkunum, kom og skakkaði leikinn. Stúlkunni var síðan ekið til Hafnarfjarðar, en hún býr í Reykjavík. Alla leiðina héldu stúlkurnar tvær áfram að lemja hana. Hún var skilin eftir í Hafnarfirði og hótað lífláti kjaftaði hún frá. Að skilnaði kröfðust stúlkurnar 150 þúsund króna, annars yrði hún drepin. Stúlkan er óbrotin en mjög bólgin í andliti. Tekin var sneiðmynd af henni í gær og Hrönn segir að læknar hafi sagt að hurð hafi skollið nærri hælum. Hún hafi verið svo bólgin að eitt högg á ákveðinn stað hefði getað kostað hana lífið. „Það er í raun ótrúleg heppni að hún sé á lífi. Það hefur einhver vakað yfir henni," segir Hrönn. Lögreglan staðfesti að stúlkan og fjölskylda hennar hefðu rætt við lögreglumenn og lýst málsatvikum með þessum hætti. Rannsókn væri á frumstigi og stúlknahópsins væri leitað. Hrönn segir systur sína hafa verið svo ringlaða á lögreglustöðinni að hún hafi verið send heim til að jafna sig áður en formlegri skýrslutöku yrði lokið. „Hún er alveg í sjokki og vill helst flytja af landi brott."- kóp
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira