Erlent

Nakinn maður skaut þrjá til bana á veitingastað

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Enn hefur ekki tekist að finna manninn.
Enn hefur ekki tekist að finna manninn. Vísir/AFP
Nakinn maður skaut þrjá til bana og særði fjóra í nótt á veitingastaðnum „Waffle House“ í bænum Antioch í Bandaríkjunum. 

Lögreglan í Nashville leitar nú að manninum sem talinn er vera hinn 29 ára Travis Reinking. Gesti á staðnum tókst að afvopna árásarmanninn en hann komst þó undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×