Lífið

Nakin í framboði

Baldvin Þormóðsson skrifar
Salka Valsdóttir vekur mikla athygli.
Salka Valsdóttir vekur mikla athygli. vísir/daníel
„Ég var orðin svo pirruð á ákveðinni forræðishyggju sem var í gangi í samskiptum skólastjórnar og nemendafélagins,“ segir Salka Valsdóttir, einn meðlima Reykjavíkurdætra, en hún bauð sig fram til forseta Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð og hengdi upp nektarmyndir af sjálfri sér sem plaköt.

„Það var rosaleg ritskoðun í skólablaðinu og mér fannst ég heldur ekki búin að pönkast nægilega mikið í stjórn,“ segir Salka og hlær.

„Mér finnst að tilgangur nemendafélags sé að gera allt eins skemmtilegt og hægt er fyrir nemendurna en núna er eins og það sé verið að aga þá og allt gert til þess að þóknast skólastjórninni.“

Salka bjó til síðu vegna framboðsins á Facebook en var bönnuð í kjölfar myndbirtingarinnar. „Fyrst kom viðvörun en síðan var ég sett í bann í 48 klukkustundir,“ segir Salka en Facebook hafði flokkað myndina sem klám.

Plakatið var umdeilt.
Klárlega ekki klám

„Þetta er klárlega ekki klám og það er engin hlutgerving við þessa mynd heldur er þetta bara falleg mynd sem vinkona mín, Sólveig Lára, tók.“ segir Salka.

„Það er eins og þeir séu með einhverja græju sem skannar hvort það séu brjóst á myndum en ef ég væri karlmaður sem væri ber að ofan þá yrði ekkert sagt.“ 

Athæfi Sölku virðist þó hafa vakið athygli utan skólans en vinkona hennar sem stundar nám við Verslunarskóla Íslands sagði henni að einstaklingar innan Versló hefðu spurst fyrir um athæfið. 

„Það voru einhverjar stelpur að spyrja vinkonu mína hvort ég væri ekki hrædd um að fólk héldi að ég væri lauslát út af myndunum,“ segir Salka. 

„Síðan voru nokkrar stelpur sem spurðu hvort kærastinn minn leyfði mér að vera með hár undir höndunum,“ segir Salka og hlær en hún undirbýr brúðkaup sitt og unnusta síns, Almars S. Atlasonar. 

„Vinkona mín sagði þessum stelpum að ég væri ekki beint lauslát, í ljósi þess að ég væri að fara að gifta mig í sumar,“ segir Salka sem er ákaflega spennt fyrir athöfninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×