Íslenski boltinn

Næstu leikir í beinni og dagskrá Pepsi-markanna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pepsi-mörkin færa sig 22.00 tímanum í síðustu umferðunum.
Pepsi-mörkin færa sig 22.00 tímanum í síðustu umferðunum. vísir/pjetur
Búið er að ákveða sjónvarpsleiki næstu tveggja umferða í Pepsi-deild karla í fótbolta, en FH verður til sýninga í þeim báðum.

Sunnudaginn 13. september, þegar deildin heldur áfram eftir landsleikjafrí, verður leikur FH og ÍBV í beinni útsendingu kl. 17.00 og Pepsi-mörkin færa sig fram um klukkutíma, verða þá á dagskrá klukkan 21.00.

Í 20. umferðinni verður stórleikur Breiðabliks og FH í beinni útsendingu klukkan 16.00 20. september og Pepsi-mörkin verða þá á dagskrá klukkan 20.00.

Eftir á að ákveða sjónvarpsleikinn í 21. umferðinni, en hún fer fram laugardaginn 26. september klukkan 14.00. Þann daginn verða Pepsi-mörkin verða á dagskrá klukkan 17.00.

Lokaumferðin fer fram laugardaginn 3. október klukkan 14.00. Þann dag verður hefðbundinn lokaþáttur Pepsi-markanna og svo tveggja tíma uppgjörsþáttur. Í heildina verða Pepsi-mörkin þrír tímar eftir lokaumferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×