Sport

Nær Gustafsson að tryggja sér titilbardaga gegn Jones?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Gustafsson og Johnson í vigtuninni í gær.
Gustafsson og Johnson í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
Risabardagi fer fram í kvöld þegar þeir Alexander Gustafsson og Anthony Johnson mætast. Sigurvegarinn í kvöld fær titilbardaga gegn núverandi meistara í léttþungavigtinni, Jon Jones.

Bardagakvöldið fer fram í Tele2 Arena í Stokkhólmi en höllin tekur um 30.000 manns í sæti. Þetta verður því næst fjölmennasti UFC viðburður sögunnar og sá stærsti í Evrópu.

Svíinn Alexander Gustafsson verður á heimavelli en hann er einn fremsti bardagamaður heims um þessar mundir. Gustafsson er sá sem hefur komist næst því að sigra ríkjandi léttþungavigtarmeistara Jon Jones.

Þeir Jones og Gustafsson áttust við í september 2013 og voru fáir sem reiknuðu með öðru en auðveldum sigri Jones. Gustafsson kom öllum að óvörum með frábærri frammistöðu en áður en úrslitin voru kunngjörð var alls óvíst hvor færi með sigur af hólmi.

Jones sigraði eftir dómaraákvörðun en margir töldu að Gustafsson hefði átt sigurinn skilinn. Þeir áttu að mætast aftur í september áður en Gustafsson meiddist og kom Daniel Cormier í hans stað. Með sigri í kvöld tryggir hann sér annað tækifæri á beltinu.

Andstæðingur hans, Anthony Johnson, hefur fundið sig í nýjum þyngdarflokki eftir að hafa barist tveimur þyngdarflokkum neðar. Johnson barðist áður í veltivigt (77 kg) og var sá stærsti í þyngdarflokknum. Niðurskurðurinn var eðlilega gríðarlega erfiður og náði hann ekki þyngd í nokkur skipti. UFC skipaði honum að færa sig upp í millivigt (84 kg) en eftir að hafa mistekist að ná þyngd þar líka var hann rekinn úr UFC með skömm.

Johnon var gerður að atlægi í MMA heiminum og ákvað loksins að færa sig upp í léttþungavigt (93 kg). Þar hefur honum gengið frábærlega og sigrað alla bardaga sína. Hann er nú í réttum þyngdarflokki og virðist loksins vera að ná að nýta hæfileika sína.

Eins og áður segir fer bardaginn fram í Svíþjóð en bardagakvöldið miðast þó við bandarískan sjónvarpstíma. Aðalhluti bardagakvöldsins mun því hefjast kl 2 að nóttu til í Stokkhólmi.

Aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 1 hér heima og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fjórir bardagar verða á dagskrá.

Léttþungavigt: Alexander Gustafsson gegn Anthony Johnson

Millivigt: Gegard Mousasi gegn Dan Henderson

Léttþungavigt: Ryan Bader gegn Phil Davis

Fjaðurvigt: Akira Corassani gegn Sam Sicilia

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×