Sport

Nær Darren Till að bjarga helginni fyrir Liverpool?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Mikil pressa á heimamanninum Darren Till fyrir bardagann í kvöld.
Mikil pressa á heimamanninum Darren Till fyrir bardagann í kvöld. Vísir/Getty
UFC er með bardagakvöld í dag í Liverpool. Heimamaðurinn Darren Till fær þar sinn stærsta bardaga á ferlinum og er mikil pressa á herðum hans.

Darren Till var lengi vel orðaður við bardaga gegn Gunnari Nelson eftir orðaskipti á milli þeirra á samfélagsmiðlum. Till virtist þó á endanum engan áhuga hafa á að berjast gegn Gunnari enda var Till að eltast við draumabardagann.

Till fékk ósk sína uppfyllta og mætir Stephen Thompson í aðalbardaga kvöldsins á sínum heimavelli í kvöld. Till hefur haldið því fram að hann sé besti bardagamaður heims og ætlar að sanna það í kvöld.

UFC vonast til að geta gert stjörnu úr Darren Till og heimsækir Liverpool borg í fyrsta sinn svo Till geti verið aðalstjarna kvöldsins. Till getur bætt fyrir vonbrigðin í gær þegar Liverpool tapaði úrslitaleiknum í Meistaradeildinni í gær takist honum að sigra Stephen Thompson.

Þetta hefur þó ekki gengið vandræðalaust fyrir sig hjá Till. Till náði ekki tilsettri þyngd í vigtuninni í gær og var 174,5 pund (79,3 kg) þegar hann hefði þurft að vera 171 pund (77,7 kg) eða minna. Till þarf því að gefa Thompson 30% launa sinna fyrir bardagann og þurfti að vigta sig aftur inn í dag þar sem hann mátti ekki vera meira en 188 pund (85,5 kg). Till reyndist vera 187,3 pund í hádeginu í dag og getur bardaginn því farið fram.

Fyrir mann sem keppir í 77 kg veltivigt ætti það ekki að vera mikið mál að vera 85,5 kg á keppnisdegi ef allt væri eðlilegt. Till hefur hins vegar ítrekað stært sig af því að vera risastór í veltivigtinni og sagðist hafa verið 90 kg í sínum síðasta bardaga eftir að hafa vigtað sig inn 77 kg daginn áður. Spurningin er hvort hann verði í toppstandi í bardaganum í kvöld og er þetta gott dæmi um ruglið sem er í niðurskurðinum hjá mörgum bardagamönnum í UFC.

Dana White, forseti UFC, gagnrýndi Till í gær fyrir að ná ekki tilsettri þyngd í sínum eigin heimabæ. Till var þó með engar afsakanir í gær og sagðist skammast sín.

Bardagi Till og Thompson verður aðalbardaginn á UFC bardagakvöldinu í Liverpool en bein útsending hefst kl. 17 í dag á Stöð 2 Sport 2.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×