Sport

Næ vonandi að gera jafnvel enn betur á fimmtudaginn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, lenti í gær í 6. sæti í úrslitasundi 100 metra bringusunds á Heimsmeistaramótinu í Kazan í Rússlandi. Varð hún fyrsta íslenska sundkonan sem keppti til úrslita í 50 metra laug en Hrafnhildur setti nýtt Íslandsmet í fyrradag er hún synti á 1:06;87 mínútum í undanrásunum.

Bætti hún með því eigið Íslandsmet um rúma sekúndu sem hún setti á Smáþjóðaleikunum í júní. Hrafnhildur synti á 1:07;10 mínútum í gær, sekúndubroti hraðar en í undanúrslitunum og lauk keppni í 6. sæti.

Hrafnhildur var að vonum sátt þegar slegið var á þráðinn til hennar í gær en hún var ánægð með tækifærið að fá að synda til úrslita með bestu sundkonum heimsins.

„Þetta er auðvitað ákveðið spennufall, þetta var mjög skemmtileg reynsla fyrir mig. Ég hef aldrei komist í úrslit á jafn stóru móti og þessi reynsla mun eflaust nýtast mér síðar meir. Þetta hjálpar manni við undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana næsta sumar,“ sagði Hrafnhildur sem náði Ólympíulágmarkinu í undanrásunum.

„Þetta voru margar af þeim stelpum sem ég hef verið að keppa við undanfarin ár. Ég hef alltaf litið upp til þeirra og verið að eltast við að ná þeim þegar við erum að keppa. Þær hafa alltaf verið hraðari en ég en það var gaman að geta synt með þeim og tekið fram úr þeim,“ sagði Hrafnhildur, sem vonaðist til þess að árangurinn í bringusundinu væri merki um það að hún myndi ná góðum árangri í öðrum greinum. Syndir hún næst á fimmtudaginn í 200 metra bringusundi sem er sterkasta grein hennar.

„Ég á mína sterkustu grein eftir á fimmtudaginn og ég vona bara að ég nái jafn góðum árangri þar ef ekki bara betri. Ég er búin að æfa stíft fyrir það og ég er mjög spennt fyrir því að sjá hvað gerist á fimmtudaginn. Þetta var gott fyrir sjálfstraustið og á sama tíma var þetta gott til að losa um stressið. Nú er ég búin að gera þetta einu sinni og er búin að læra aðeins hvernig þetta gengur fyrir sig,“ sagði Hrafnhildur sem var ánægð með aðstæðurnar í Kazan.

„Þetta er mjög flott hérna. Það er góður matur á boðstólum og félagsskapurinn er af bestu gerð. Við erum mjög samheldin og styðjum hvert annað út í eitt svo þetta hefur bara verið æðislegt hingað til,“ sagði Hrafnhildur að lokum, en hún er ekki eini sundkappinn frá Íslandi sem hefur náð góðum árangri í Rússlandi. Náði Eygló Ósk Gústafsdóttir einnig Ólympíulágmarkinu í Rússlandi þegar hún setti nýtt Íslandsmet i 100 metra baksundi.

Með því að synda í úrslitunum komst Hrafnhildur í flokk með bestu sundmönnum Íslands sem hafa synt í lokaúrslitum í 50 metra laug. Eru rúm tíu ár síðan íslenskur sundkappi keppti til úrslita. Það var þegar Örn Arnarson nældi í brons og silfur á Heimsmeistaramótinu í Fukuoka árið 2001.


Tengdar fréttir

Hrafnhildur í 6. sæti í úrslitasundinu

Hrafnhildur Lúthersdóttir lenti nú rétt í þessu í 6. sæti af átta keppendum í 100 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í Kazan í Rússlandi.

Þetta kom mikið á óvart

Hrafnhildur Lúthersdóttir náði sögulegum árangri á heimsmeistaramótinu í sundi í gær þegar hún komst í úrslit í 100 metra bringusundi. Hrafnhildur setti auk þess nýtt Íslandsmet og náði Ólympíulágmarki.

Hrafnhildur: Þetta var ótrúlegt

Eins og fram kom í Vísi í dag hefur sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir gert frábæra hluti á heimsmeistaramótinu í Kazan í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×