Innlent

Náði að forða árekstri þegar bíl var ekið yfir á rangan vegarhelming

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þó nokkrir voru teknir fyrir ölvunarakstur í gær.
Þó nokkrir voru teknir fyrir ölvunarakstur í gær. Vísir/Hari
Tilkynnt var um umferðaróhapp við Höfðabakka rúmlega átta í gærkvöldi. Maður hafði þá misst stjórn á bíl sínum, ók á vegrið og það yfir á rangan vegarhelming, það er á móti umferð, þar sem hann stöðvaðist á vegriði.

Maðurinn var fastur í bifreiðinni en reyndist ekki slasaður. Hann er grunaður um ölvun við akstur og var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Ökumaður bifreiðar sem kom á móti manninum þar sem hann ók bílnum yfir á rangan vegarhelming náði að forða árekstri.

Þá voru fjórir ökumenn teknir í gærkvöldi af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×