Sport

Nadal og Federer unnu í tvíliðaleik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Nadal og Federer eru meðal sigursælustu tenniskappa heims
Nadal og Federer eru meðal sigursælustu tenniskappa heims vísir/getty
Stórstjörnurnar Roger Federer og Rafael Nadal spiluðu saman í tvíliðaleik í tennis í fyrsta skipti í Laverbikarnum í gær.

Saman hafa kapparnir tveir unnið 35 risamót í tennis. Þeir eru hluti af úrvalsliði Evrópu sem keppir á móti úrvalsliði heimsins á þessu fyrsta ári Laverbikarsins.

Þeir unnu þá bandarísku Sam Querrey og Jack Sock 6-4, 1-6, 10-5 og komu liði Evrópu í 9-3 forystu í keppninni.

Það lið sem nær fyrst 12 stigum vinnur keppnina, en 12 stig eru í boði í dag, á lokadegi keppninnar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×