Skoðun

Ná ekki endum saman!

Björgvin Guðmundsson skrifar
Ellilífeyrisþegi kom að máli við mig og sagðist eiga erfitt með að láta enda ná saman.Hann hefur tæpar 100 þúsund krónur úr lífeyrissjóði á mánuði en vegna skerðingar á lífeyri almannatrygginga og skattlagningar fær hann ekki nema 219 þúsund á mánuði samanlagt frá TR og lífeyrissjóðnum eftir skatt. Hann er einhleypur.

Eldri borgarinn á gamlan bíl. Hann getur lítið hreyft bílinn; á ekki fyrir bensíni. Hann þarf að láta ganga fyrir að kaupa nauðsynleg lyf og fara til læknis, þegar þörf krefur. Stundum verður hann að neita sér um læknisaðstoð eða sleppa því að leysa út lyfin. Þetta er dæmigert ástand fyrir hóp aldraðra og öryrkja, sem hefur lítinn eða engan lífeyrissjóð. Þetta er að sjálfsögðu mannréttindabrot og gengur gegn 76. grein stjórnarskrárinnar. Félag eldri borgara hefur sagt frá þessu ástandi um nokkurra ára skeið. En það hreyfir ekki við ráðamönnum. Þeir aðhafast ekkert. Þeir virðast kæra sig kollótta um það þó ekki sé unnt að framfleyta sér af þeim lága lífeyri, sem almannatryggingar skammta öldruðum og öryrkjum. Ráðherrarnir guma bara af góðri stöðu þjóðarbúsins og góðum hag ríkissjóðs! Einstaka sinnum láta þeir vinsamleg orð falla um að þeir muni athuga málin. En lengra komast þeir ekki.

Það þarf að gera tvennt til þess að breyta þessu ástandi: 1) Það þarf að afnema tekjutengingar eins og fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson , lofaði 2013, fyrir kosningar að gera, ef hann kæmist til valda. 2) Það þarf að stórhækka lífeyri þeirra, sem aðeins hafa tekjur frá almannatryggingum. Samkvæmt tillögum um breytingar á almannatryggingum, sem liggja fyrir, hækkar lífeyrir ekki um eina krónu hjá framangreindum hópi. Samt liggur það fyrir að upphæð lífeyris dugar ekki til framfærslu. Þá er það furðulegt, að samkvæmt nýju tillögunum fellur grunnlífeyrir niður hjá nokkrum þúsundum eldri borgara. Eldri borgurum tókst að knýja það fram að grunnlífeyrir yrði endurreistur en það stendur ekki lengi, aðeins til áramóta. Lífeyrisgreiðslur eiga aftur að skerða grunnlífeyri.

Hvað er til ráða? Ráðherrar hlusta ekki á eldri borgara og öryrkja, a.m.k. taka þeir ekkert tillit til óska þeirra um kjarabætur. Nú eru kosningar í nánd. Ef til vill hlusta ráðamenn betur af þeim sökum. Næstu mánuðir munu skera úr um það hvort ráðamenn veiti öldruðum og öryrkjum nægar kjarabætur eða hvort grípa verði til nýrra ráða til þess að knýja fram þær kjarabætur sem dugi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×