Menning

Myndirnar fjalla um mannleg efni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Claude Gensac og Corinne Masiero leika í mynd Sólveigar Anspach, Lulu nakin.
Claude Gensac og Corinne Masiero leika í mynd Sólveigar Anspach, Lulu nakin.
„Myndin Intouchables vakti gríðarlega athygli og opnunarmynd frönsku kvikmyndahátíðarinnar nú, Ömurleg brúðkaup, er á pari við hana. Hún hefur verið gríðarlega vinsæl úti og fjallar um efni sem er á allra vörum núna, fjölmenningarsamfélag, fordóma og trúarbrögð, en allt á gamansaman hátt,“ segir Einar Hermannsson, nýr forseti Alliance Française á Íslandi.

Einar nefnir líka myndina Lulu nakin, eftir fransk-íslenska leikstjórann Sólveigu Anspach sem verður sýnd í dag, laugardag og sunnudag.

„Það er grípandi mynd um konu sem klúðrar atvinnuviðtali en á heimleiðinni kynnist hún sérkennilegu fólki á jöðrum samfélagsins. Aðalleikkonan, Corinne Masiero, er mjög vinsæl í Frakklandi,“ lýsir hann.

Aðrar myndir á hátíðinni fjalla líka um mannleg efni, að sögn Einars. Sem dæmi tekur hann myndina Af öllum kröftum sem Barði Jóhannesson gerði tónlistina við, segir hana hugljúfa mynd sem byggð sé á sannsögulegum atburðum.

„Hún er um fatlaðan dreng í hjólastól og föður sem ákveður að taka þátt í Iron Man með drenginn á bakinu,“ lýsir hann.

„Beélier-fjölskyldan er önnur, hún er um unga stelpu sem er með einstaka söngrödd en hún býr með foreldrum sínum og bróður sem öll eru heyrnarlaus og þau reiða sig á hjálp hennar við að hafa samskipti við umheiminn.“

Franska kvikmyndahátíðin er samstarfsverkefni franska sendiráðsins, Alliance, Græna ljóssins og Senu og Einar segir kanadíska sendiráðið inni í samstarfinu líka.

„Það er ein kanadísk mynd á hátíðinni og líka ein frá Fílabeinsströndinni,“ tekur hann fram. Kveðst ekki sjálfur hafa séð nema útdrátt úr myndunum en segir þær allar lofa góðu.

„Frakkar eru þriðju stærstu kvikmyndaframleiðendur í heimi á eftir Bandaríkjamönnum og Indverjum og kunna til verka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×