Lífið

Myndband: Harry Styles grét á fyrstu tónleikum One Direction án Zayn Malik

Birgir Olgeirsson skrifar
One Direction þegar Zayn Malik var enn í bandinu.
One Direction þegar Zayn Malik var enn í bandinu. Vísir/Getty
Það syrgja margir brotthvarf Zayn Malik úr bresku drengjasveitinni One Direction. Fjölmargir hafa lýst sorg sinni á samfélagsmiðlum með þessa ákvörðun Maliks og hefur hún hún framkallað grátur og gnístur tanna aðdáenda sveitarinnar.

Einn þeirra sem hefur tekið þessu afar nærri sér er einn meðlima One Direction, Harry Styles, sem kom fram í sorgarklæðum á tónleikum sveitarinnar í gærkvöldi í Jakarta. Tónleikarnir voru þeir fyrstu síðan Malik tilkynnti um ákvörðun sína og sást Styles fella tár á sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×