Tónlist

Myndband: Dóp, nornaseiður og satanískar orgíur á Íslandi

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Electric Wizard eru undir miklum áhrifum af gömlum hryllingsmyndum.
Electric Wizard eru undir miklum áhrifum af gömlum hryllingsmyndum.
Breska þungamálmsveitin Electric Wizard hefur nú gefið út nýtt myndband fyrir lagið Sadiowitch og er það að hluta til tekið upp á Íslandi.

Electric Wizard spila það sem kallast „doom metal“, hægur, drunandi og níðþungur málmur en sveitin Black Sabbath lagði grunninn að stefnunni. Electric Wizard eru undir miklum áhrifum af gömlum hryllingsmyndum, dulspeki, dópi og bókmenntaverkum H.P. Lovecraft.

Myndbandið er skotið uppi á Íslandi, Belgíu og Póllandi. Myndefnið er dökkt og dulrænt en þar má sjá satanískar orgíur og trúarathafnir ásamt nornum sjóðandi saman nornaseið.

Listamaðurinn Páll Banine aðstoðaði við gerð myndbandsins en því var leikstýrt af belgísku leikstýrunni Shazzula Vultura. „Þegar hún kom til landsins þá vantaði hana hauskúpu úr manneskju,“ segir Palli og hlær. „Það var helvíti feit pöntun en ég náði að útvega afsteypu af alvöru hauskúpu.“

Myndbandið var meðal annars tekið upp á Raufarhöfn, Hveravöllum og í Dimmuborgum. Það hefur verið fjarlægt af YouTube en hægt er að sjá það hér á þýsku Noisey heimasíðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×