Viðskipti erlent

Myndband: Bandarískt vélmenni skorar á japanskan kollega í bardaga

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hér sést MegaBot tilbúinn í að taka hinn japanska Kuratas í gegn.
Hér sést MegaBot tilbúinn í að taka hinn japanska Kuratas í gegn.
Í fjölmörgum teikni- og kvikmyndum höfum við séð vélmennum bregða fyrir. Í sumum myndanna gerist það jafn vel öðru hvoru að vélmennin takast á. Ef allt gengur að óskum fyrirtækisins MegaBots Inc. mun slíkur bardagi verða að veruleika áður en árið er á enda.

Fyrirtækið hefur framleitt skrambi stórt vélmenni sem er hlaðið þungavigtarvopnum. Í Japan hefur annað fyrirtæki, Suidobashi Heavy Industry, náð að smíða vélmenni.

„Þið vitið það alveg jafn vel og við, þetta er eitthvað sem við verðum að gera,“ segja mennirnir á bak við MegaBots í myndbandi þar sem þeir skora Japanana á hólm.

Forvitnilegt verður að sjá hvort og hvenær af bardaganum verður og hvor þjóðin mun standa uppi sem sigurvegari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×