Tónlist

Myndband: Air og Bang Gang staddir úti í geimi

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Barði og Dunckel eru staddir úti í geimi í myndbandinu fyrir Blue Hawaii.
Barði og Dunckel eru staddir úti í geimi í myndbandinu fyrir Blue Hawaii.
„Blue Hawaii er lag sem blandar tveimur sólum Starwalkers fullkomlega saman í eina geimþoku,“ sagði rafpoppstvíeykið Starwalker við tónlistarveituna Stereogum en í dag kom út myndband við nýtt lag þeirra, Blue Hawaii.

Starwalker er samstarfsverkefni Barða Jóhannssonar úr Bang Gang og Jean-Benoit Dunckel úr Air. „Við vorum gríðarlega ánægðir með það,“ segir Barði í samtali við Fréttablaðið en myndbandið hæfir svo sannarlega nafni Starwalker þar sem kapparnir eru staddir úti í geimi.



mynd/saga sig
Ragnar Bragason leikstýrir en hann hefur unnið mikið af myndböndum Bang Gang. Framleiðslufyrirtækið Trickshot sá um tæknibrellurnar. „Þeir sáu um að koma okkur út í geiminn,“ segir Barði en Aron Bergmann Magnússon annaðist listræna stjórnun.

Þeir kappar munu gefa út eigin plötur hvor fyrir sig eftir áramót, Barði nýja Bang Gang-plötu en Dunckel sólóplötuna Darkel. Eftir þær útgáfur mun Starwalker gefa út fyrstu plötu sína, sem er að sögn Barða tilbúin. „Við tókum upp meirihlutann af plötunni í hljóðveri Air í París, sem var gríðarlega fallegt,“ segir Barði.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×