Sport

Myndband | Glæsilegt rothögg Magnúsar

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Þrír íslenskir bardagamenn úr Mjölni kepptu í AVMA bardagasamtökunum í gærkvöldi. Kvöldið var frábært í alla staði en þremenningarnir kláruðu allir sína bardaga. Magnús Ingi Ingvarsson rotaði andstæðing sinn eftir aðeins 39 sekúndur í fyrstu lotu.

Bardagarnir voru áhugamannabardagar í MMA en þeir Bjarki Ómarsson, Bjarki Þór Pálsson og Magnús Ingi Ingvarsson kepptu allir í léttvigt.

Magnús Ingi Ingvarsson mætti Ricardo Franco en hann var með um 16 bardaga að baki og reynslumikill andstæðingur. Franco hefur lengi æft box og sparkbox en náði ekki einu höggi á Magnús.

Magnús byrjaði bardagann afar vel og á fyrstu sekúndum bardagans kom Magnús með háspark sem rétt strauk höfuð Franco. Stuttu eftir það rotaði Magnús Franco með þungum vinstri krók og bardaginn búinn eftir aðeins 39 sekúndur.

Þetta er annar sigur Magnúsar í röð eftir rothögg með vinstri krók en eftir bardagann sagðist hann vera örlítið hissa á þessu þar sem hann er nú rétthentur. Þeir sem vilja fylgjast nánar með æfingum og keppnum hjá Magnúsi ættu að kíkja á Facebook síðu hans hér.

Bjarki Ómarsson og Bjarki Þór Pálsson kláruðu báðir sína andstæðinga með „rear naked choke“ hengingu en ítarlegri lýsingu á bardögum þeirra má lesa á vef MMA Frétta hér.

Jón Viðar Arnþórsson, einn af þjálfurum Keppnisliðs Mjölnis og formaður Mjölnis, var með í för og var að vonum ánægður með frammistöðuna. „Þetta er ein flottasta frammistaða í sögu Mjölnis. Kláruðu allir sína bardaga og voru allir frábærlega vel undirbúnir, bæði líkamlega og andlega. Ég get bara ekki beðið eftir framhaldinu.“

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×