Lífið

Myndaveisla úr Háskólabíói: Fjallgöngur frá ólíkum sjónarhornum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stemningin var frábær í Háskólabíó.
Stemningin var frábær í Háskólabíó.
Fjöldi gesta lagði leið sína í Háskólabíó þegar Stefan Glowacz, einn fremsti fjallamaður heims, hélt fyrirlestur um fjallamennsku frá ólíkum sjónarhornum. 66°Norður í samstarfi við GORE-TEX stóðu fyrir fyrirlestrinum en allur aðgangseyrir rann til styrktar Slysavarnarfélagsins Landsbjörg.

Stefan Glowacz er einn fremsti fjallamaður heims og starfar náið með GORE-TEX við prófun og þróun efna. Í fyrirlestri sínum sagði hann frá leiðangri sínum á Sam Ford Fjord á Baffin Island, göngu á hæsta fjall Malasíu, Mount Kinabalu, og þegar hann kleif „Into the light“ sem er ein erfiðata klifurleið sem þekkist og er í hellinum Madschlis al Dschinn.

Auk Stefans komu þau Elísabet Margeirsdóttir, ein fremsta fjallahlaupakona landsins, og Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir og reyndur fjallgöngu- og skíðamaður, fram með fyrirlestra. Elísabet sagði frá hlaupum sínum hér á landi sem og erlendis.

Hún kláraði meðal annars Tor des Géants hlaupið um Aosta dalinn á Ítalíu í september en það var 340 km langt með 25.000 metra samanlagðri hækkun.

Tómas sagði frá fjallaskíðaferð FÍFL yfir mikilfenglegasta hluta Alpanna í máli og myndum. Hér að ofan má sjá skemmtilegar myndir úr Háskólabíói.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×