Tíska og hönnun

Myndaveisla: Pop-up borg Kraums og Aurora

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það var margt um manninn porti Hafnarhússins.
Það var margt um manninn porti Hafnarhússins.
Kraumur tónlistarsjóður og Hönnunarsjóður Auroru settu upp pop-up borg og buðu á tónleika á HönnunarMars síðastliðinn laugardag þar sem fjölmargar hljómsveitir og tónlistarmenn komu fram í porti Hafnarhússins. 

Meðal þeirra sem stigu á stokk voru Retro Stefson,Sin Fang og Samaris sem allar hafa fengið Kraumsverðlaun fyrir verk sín. Einnig komu fram; Snorri Helgason, Bjartey & Gígja úr YLJU, Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn. Hönnun portsins var í höndum Theresu Himmer og Brynhildar Pálsdóttur.

Viðburðurinum var lýst sem götupartý með tónleikum og varstefnumót tónlistar og hönnunar þar sem tónlistarmenn, hönnuðir og arkitektar mætast í pop-up borg framtíðarinnar. Um var að ræða samvinnuverkefni Kraums tónlistarsjóðs og Hönnunarsjóðs Auroru sem síðustu ár hafa unnið með og að framgangi fjölda íslenskra tónlistarmanna og hönnuða, hérlendis sem erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×