Viðskipti innlent

Myljandi hagnaður knattspyrnukappa: Ríkharður Daðason græddi 50 milljónir á fjárfestingum

ingvar haraldsson skrifar
Auk þess að hagnast á fjárfestingum þá gerði Ríkharður Fram að bikarmeisturum í knattspyrnu árið 2013. Hér fagnar Ríkharður titlinum með Almarri Ormarssyni, þáverandi leikmanni Fram.
Auk þess að hagnast á fjárfestingum þá gerði Ríkharður Fram að bikarmeisturum í knattspyrnu árið 2013. Hér fagnar Ríkharður titlinum með Almarri Ormarssyni, þáverandi leikmanni Fram. vísir/anton brink
Fjárfestingafélög í eigu fyrrverandi landsliðsmannsins í knattspyrnu Ríkharðs Daðasonar högnuðust um um 46,5 milljónir árið 2013. Þá greiddi Ríkharður sjálfum sér 4,5 milljónir í laun á árinu. Því nam hagnaður og launagreiðslur samanlagt 51 milljón króna.

Félögin sem um ræðir er RD 11 og RD Invest en Ríkharður lék jafnan í treyju númer 11 með íslenska landsliðinu. Verðbréfaeign félaganna nam ríflega 60 milljónum og þá nam handbært fé 28 milljónum samkvæmt ársreikningum ársins 2013.

Auk þess að fjárfestingafélögum hans hafi gengið vel þá gerði Ríkharður karlalið Fram í knattspyrnu einnig að bikarmeistarum árið 2013 eftir að hafa tekið við þjálfun liðsins á miðju sumri.

Ríkharður var atvinnumaður í knattspyrnu nær óslitið frá árinu 1996 til ársins 2003 og lék m.a. í Grikklandi, Noregi og með Íslendingaliðinu Stoke City á Englandi. Ríkharður lék 44 landsleiki með íslenska landsliðinu og skoraði 14 mörk.

Hans frægasta mark var líklega gegn nýkrýndum heimsmeisturum Frakka árið 1998. Þá skoraði Ríkharður með glæsilegri kollspyrnu úr miðjum vítateignum eftir skógarferð franska markvarðarins Fabian Barthez líkt og sjá má í spilaranum hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×