Innlent

Myglusveppur herjar á starfsmenn BUGL

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sveppur fannst í eldri byggingu BUGL í sumar, og nú í þeirri nýju - viðbyggingunni.
Sveppur fannst í eldri byggingu BUGL í sumar, og nú í þeirri nýju - viðbyggingunni. vísir/vilhelm
Líkur eru á að færa þurfi starfsemi barna- og unglingageðdeildar Landspítalans við Dalbraut í annað húsnæði vegna gruns um myglusvepp. Unnið er að því að taka gamla húsnæði deildarinnar í gegn eftir að rakaskemmdir fundust í byrjun sumars, en nú nýlega vaknaði grunur um myglusvepp í nýju byggingunni.

„Það er ákveðinn grunur um myglusvepp. Það er verið að skoða þetta en það er fullsnemmt að segja til um hversu alvarlegt þetta er. En það er margt sem bendir til þess,“ segir Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir göngudeildar BUGL.

Átta fundið fyrir slappleika

Hún segir allt að átta starfsmenn hafa farið í tímabundið veikindaleyfi vegna óþæginda sem rakin eru til sveppsins. Starfsmenn göngudeildarinnar eru þrjátíu talsins.  „Fólk hefur farið tímabundið úr vinnu, en einhverjir reyna að stunda vinnu annars staðar. Heildarfjöldinn er líklega á milli sex og átta.“

Guðrún segir rannsókn nýlega hafa hafist og væntir niðurstaðna á komandi dögum. Ljóst sé að starfsemi deildarinnar muni fara úr skorðum, verði grunur um myglusvepp staðfestur. „Þetta mun klárlega hafa áhrif á starfsemina, en fer auðvitað allt eftir umfangi vandans, sem við vitum að svo stöddu ekki alveg hver er. Ef það finnst mygla í nýja húsnæðinu þá verðum við að skoða þessi mál í nýju ljósi og taka ákvarðanir út frá því hversu alvarlegur vandinn er. Núna er verið að vinna með það sem fannst í eldri byggingunni.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem myglusveppur veldur usla á Landspítalanum, því árið 2013 kom í ljós að sex læknar höfðu glímt við veikindi vegna svepps á skrifstofum spítalans við Hringbraut.


Tengdar fréttir

Myglan kostað 160 milljónir

Miklar framkvæmdir hafa verið við elstu byggingu Landspítalans við Hringbraut vegna leka sem olli myglu. Skipt hefur verið um glugga og veggir þéttir til að freista þess að koma í veg fyrir raka og hindra mygluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×