Innlent

Myglusveppaþolendum gefnar falskar vonir

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Þeir sem hafa búið í íbúð með myglusvepp geta í mörgum tilfellum ekki haldið búslóð sinni þótt farið sé í nýtt húsnæði þar sem myglugró festast í fötum og innbúi.
Þeir sem hafa búið í íbúð með myglusvepp geta í mörgum tilfellum ekki haldið búslóð sinni þótt farið sé í nýtt húsnæði þar sem myglugró festast í fötum og innbúi. vísir/getty
Myglusveppaþolendur sem vegna eitrunar hafa þurft að láta hreinsa allt innbú sitt segjast vera sviknir af fyrirtækjum sem lofi hundrað prósent árangri með ósonhreinsun.

Gunnlaugur Bjarnason lét ósonhreinsa hluta af innbúi sínu eftir að hafa verið í leiguíbúð með myglusvepp. „Hreinsunin gekk í sjálfu sér vel en ég og sonur minn fengum mikinn hausverk, flökurleika og slappleika af lyktinni. Ég endaði á að henda rúmdýnu og hluta af fötunum vegna þessa,“ segir hann.

Í hópi þolenda myglusvepps á Facebook lýsa margir reynslu sinni og vonbrigðum með ósonhreinsun. Þar á meðal kona sem sendi bréf til Umhverfisstofnunar til að leita svara um ósonhreinsun. Í bréfinu segir hún að fyrirtækið sem hún átti viðskipti við sé að nýta sér neyð fólks sem gerir hvað sem er til að bjarga innbúi sínu enda ótryggt með öllu. Innbú hennar sé aftur á móti í verra standi en áður vegna óþefs sem best sé lýst sem megnri efnalykt.

Í svari Umhverfisstofnunar við bréfi konunnar segir að fleiri mál er varða ósonhreinsun á myglu séu til skoðunar. Einnig að álit stofnunarinnar sé að starfsemin skuli vera starfsleyfisskyld og undir eftirliti hjá heilbrigðiseftirlitinu, en ekkert eftirlit er nú með hreinsuninni. Óson sé varasamt efni og þurfi að meðhöndla af kunnáttu og varfærni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Tvær íbúðir í sömu blokk óíbúðarhæfar

Heilbrigðiseftirlitið hefur dæmt aðra stúdentaíbúð á stuttum tíma óíbúðarhæfa á Ásbrú á Reykjanesi. Svartmygla og mítlar greindust í íbúð. Leigusali þvertekur fyrir að myglufaraldur sé í íbúðum.

Tíu til fimmtán starfsmenn BUGL hafa veikst af myglusvepp

Myglusveppur greindist í húsnæði göngudeildar BUGL við Dalbraut í byrjun síðasta árs og hafa framkvæmdir staðið yfir án þess að náðst hafi að koma í veg fyrir vandann. Í síðustu viku var starfsmönnum sent bréf þar sem tilkynnt var að takmarka þyrfti starfsemi göngudeildarinnar eftir að fleiri starfsmenn veiktust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×