Sport

Murray vann Wimbledon í annað sinn

Murray heldur á bikarnm í leikslok.
Murray heldur á bikarnm í leikslok. vísir/getty
Andy Murray vann Milos Raonic í úrslitaleik Wimbledon-mótsins í tennis, en úrslitaleikurinn fór fram fyrr í dag.

Murray vann settin 6-4 7-6 (7-3) 7-6 (7-2), en þetta er hans annar Wimbledon-titill og þriðji stóri Grand Slam titill.

Sá skoski var sterkari aðilinn frá upphafi, en Raonic gafst aldrei upp og veitti þeim skoska verðuga samkeppni.

Hann stóð í tárum eftir sigurinn og átti erfitt að halda þeim aftur þegar hann tók við bikarnum.

„Þetta er mikilvægasta mótið fyrir mig á hverju einasta ári. Ég á frábærar minningar héðan, en einnig erfið töp þannig sigurinn verður enn sætari," sagði Murray við BBC.

„Milos er einn af þeim sem leggur mest á sig og í hvert skipti sem við spilum þá hefur hann bætt sig mikið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×