Sport

Murray: Sharapova verður að taka sinni refsingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sharapova og Murray eru hér saman á tennisvellinum árið 2014.
Sharapova og Murray eru hér saman á tennisvellinum árið 2014. Vísir/Getty
Andy Murray, einn besti tennismaður heims, segir að Maria Sharapova verði að axla fulla ábyrgð og taka þeirri refsingu sem hún fær fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Sharapova greindi frá því fyrr í vikunni að hún hefði fallið fyrir að taka inn lyfið meldóníum. Það hefur gert af heilsufarsástæðum, að eigin sögn, undanfarin tíu ár en lyfið var sett á bannlista nú um áramótin.

Sjá einnig: Var Sharapova með kransæðasjúkdóm?

Tíðindin hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim og ekki aðeins í heimi tennisíþróttarinnar. Talið er að fleiri íþróttamenn, sérstaklega í austur-Evrópu, hafi notað lyfið reglulega.

„Það er enginn vafi á því að ef maður tekur inn lyf sem bæta frammistöðu manns og fellur svo á lyfjaprófi að þá verður að dæma mann í bann,“ sagði Murray sem er í öðru sæti heimslistans í einliðaleik karla.

Sjá einnig: Hvað er meldóníum?

„Mér skilst að 55 íþróttamenn hafi fallið út af þessu lyfi síðan um áramóti,“ sagði Murray enn frekar. „Mér finnst það skrýtið að þetta sé hjartalyf og að svo margir íþróttamenn í fremstu röð þjáist af hjartaveiki. Það finnst mér einkennilegt.“

Hann segir enn fremur að tennisíþróttin þurfi að gera meira til að berjast gegn ólöglegri lyfjanotkun. „Þetta er betra en það var fyrir nokkrum árum síðan. Ég fór í mörg lyfjapróf í fyrra en aðeins tvisvar á þessu ári. Það er ekki nóg.“


Tengdar fréttir

Sharapova fékk fimm viðvaranir

Tók inn lyf í áratug sem fór á bannlista á áramótin. Sharapova féll á lyfjaprófi nokkrum vikum síðar.

Tennisdrottning hrynur af stalli

Tekjuhæsta íþróttakona heims undanfarin ellefu ár féll á lyfjaprófi. Ber við sig kæruleysi en gengst við brotum sínum. Gæti fengið allt að fjögurra ára bann.

Hvað er meldóníum?

"Það er lyf sem er aðallega notað við hjartasjúkdómum og skorti á blóðflæði til hjartans,“ sagði Birgir Sverrisson, starfsmaður lyfjaeftirlits ÍSÍ, í samtali við íþróttadeild í gær um meldóníum, lyfið sem felldi Mariu Sharapovu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×