Sport

Murray: Get beitt mér af fullum krafti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Amelie Mauresmo segir Andy Murray til.
Amelie Mauresmo segir Andy Murray til. Vísir/Getty
Skoski tenniskappinn Andy Murray segist vera klár í slaginn á ný eftir bakmeiðsli.

Murray gekkst undir aðgerð í september á síðasta ári og var í kjölfarið frá keppni í þrjá mánuði. Hann segist nú vera farinn að beita sér af fullum krafti á ný.

„Ég gat ekki æft eins mikið og ég vildi í byrjun árs vegna bakmeiðslanna, en núna get ég byrjað aftur að æfa af 100% krafti, án þess að hlífa mér,“ sagði Murray sem tekur þátt í Rogers Cup sem fer fram í Toronto í vikunni.

Þetta verður fyrsta mót Skotans síðan hann féll úr leik í átta-manna úrslitum á Wimbledon mótinu í júlí. Murray mætir annað hvort Santiago Giraldo frá Kólumbíu eða Nick Kyrgios frá Ástralíu í annarri umferð Rogers Cup.

Murray mun nýta Rogers Cup bæði sem undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið sem hefst 25. ágúst næstkomandi og til að bæta stöðu sína á heimslistanum. Eftir Wimbledon mótið féll hann niður í 10. sæti listans, en hann hefur ekki verið svo neðarlega á honum síðan 2008.

Murray skipti nýverið um þjálfara, en hann kveðst ánægður með samstarfið með hinni frönsku Amelie Mauresmo, sem hrósaði sigri á Opna ástralska og Wimbledon árið 2006.

„Ég nýt þess að vinna með henni, hún hefur hjálpað mér mikið,“ sagði Murray sem vonast eftir löngu samstarfi með Mauresmo.

„Við settumst niður daginn eftir Wimbledon og bjuggum til áætlun fyrir næstu mánuði.

„Hún og Dani Vallverdu (aðstoðarþjálfari Murray) verða með mér á Opna bandaríska. Þannig lítur planið út þessa stundina, en ég stefni á að vinna með henni í framtíðinni,“ sagði Murray.


Tengdar fréttir

Leiðir skilja hjá Murray og Lendl

Þjálfarinn sem kom Murray á toppinn ætlar að einbeita sér að eigin verkefnum. Skilja í mikilli sátt við hvorn annan.

Nadal fór illa með Murray

Rafael Nadal er kominn í sinn níunda úrslitaleik á Opna franska meistaramótinu á síðustu tíu árum.

Yfirburðirnir að taka enda?

Novak Djokovic og Roger Federer eru komnir í undanúrslitin á Wimbledon-mótinu í tennis en landslagið á meðal þeirra bestu hefur verið að breytast.

Murray kominn með nýjan þjálfara

Skoski tenniskappinn Andy Murray hefur fengið nýjan þjálfara. Hún heitir Amélie Mauresmo og kemur frá Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×