Erlent

Munu rannsaka tilkynningar FBI um tölvupóst Clinton

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Rannsóknin á tölvupóstamáli Hillary Clinton verður nú rannsökuð.
Rannsóknin á tölvupóstamáli Hillary Clinton verður nú rannsökuð. vísir/getty
Innra eftirlit bandaríska dómsmálaráðuneytisins mun hefja rannsókn á þeim ákvörðunum sem teknar voru hjá alríkislögreglunni þar í landi sem og í dómsmálaráðuneytinu sjálfu þegar rannsókn fór fram á tölvupóstsamskiptum Hillary Clinton, frambjóðanda Demókrata fyrir forsetakosningarnar í nóvember. BBC greinir frá.

Tölvupóstsmálið snerist í grunninn um að Clinton, í tíð sinni sem utanríkisráðherra, nýtti sér sitt eigið tölvupóstfang sem hýst var á einkavefþjóni hennar, en ekki tölvupóstfang sem skráð var á vefsvæði bandarísku ríkisstjórnarinnar. Meðferð leyniskjala, sem fundust í póstum hennar er ólögleg á slíkum einkavefþjónum auk þess sem slíkir vefþjónar eru ekki eins öryggir og ríkisvefþjónar.

Sjá einnig: Allt sem þú þarft að vita um tölvupóstamál Hillary Clinton

Málið kom sér afar illa fyrir Clinton í kosningabaráttunni og hefur hún meðal annars kennt því um að hún hafi tapað fyrir Donald Trump. Hann nýtti sér málið óspart til þess að mála Clinton upp sem glæpamann og hafði heitið stuðningsmönnum sínum því að hún yrði fangelsuð kæmist hann til valda.

Alríkislögreglan lauk rannsókn á málinu í júlí 2016 og gaf það út að ekki ætti að ákæra Clinton. Þann 28. október 2016 tilkynnti James Comey, yfirmaður alríkislögreglunnar hins vegar bandaríska þinginu að málið yrði tekið upp að nýju þar sem FBI hafi fengið í té nýja tölvupósta sem þyrfti að rannsaka hvort í væru ríkisleyndarmál.

Umræddir tölvupóstar komu frá Anthony Weiner, umdeildum fyrrum þingmanni og konu hans, Huma Abedin sem var lykilstarfsmaður í kosningabaráttu Clinton og einn af hennar nánustu ráðgjöfum. 

Þann 6. nóvember, tveimur dögum fyrir forsetakosningarnar tilkynnti Comey svo að FBI hefði komist að sömu niðurstöðu og í júlí, að ekki ætti að ákæra Clinton.   

Sjá einnig: Clinton verður ekki ákærð vegna tölvupóstanna

Rannsókn innra eftirlitsins mun skoða sérstaklega verkferla í kringum blaðamannafundinn frá því í júlí þegar tilkynnt var að Clinton yrði ekki ákærð en einnig verkferla í kringum tilkynningu alríkislögreglunnar frá því í lok október þar sem James Comey tilkynnti bandaríska þinginu að tölvupóstsmálið yrði tekið upp að nýju.

Að sögn Michael Horowitz, sem fara mun fyrir rannsókn innra eftirlitsins fer rannsóknin fram vegna ,,fjölda beiðna" frá almenningi sem og þingmönnum. 


Tengdar fréttir

Sakar forstjóra FBI um lögbrot

Leiðtogi Demókrata í bandarísku öldungadeildinni segir að forstjóri Alríkislögreglunnar FBI hafi mögulega gerst brotlegur við lögin þegar hann greindi frá því að stofnunin væri að rannsaka tölvupósta sem tengjast mögulega Hillary Clinton forsetaframbjóðanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×