Lífið

Munu Eurovision-partýin hefjast klukkan 18?

Atli ísleifsson skrifar
Eurovision-keppnin verður haldin í Globen í Stokkhólmi dagana 10., 12. og 14. maí næstkomandi.
Eurovision-keppnin verður haldin í Globen í Stokkhólmi dagana 10., 12. og 14. maí næstkomandi. vísir/afp
Sænska ríkissjónvarpið hyggst leggja fram tillögu fyrir forsvarsmenn Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) um að undanúrslitakvöld og úrslitakvöld Eurovision-keppninnar hefjist klukkutíma fyrr en tíðkast hefur.

Martin Österdahl, framleiðandi hjá sænska ríkissjónvarpinu, segir í samtali við Dagens Nyheter að ástæðan sé sú að keppnin hefjist mjög seint að kvöldi í þeim löndum sem hafa bæst í hópinn á síðustu árum. Þannig hefjist keppnin ekki fyrr en á miðnætti að staðartíma í Aserbaídsjan.

Österdahl segir að sé vilji til að sjá keppnina vaxa og enn vera stærsta sjónvarpsviðburð ársins næstu fimmtíu árin verði þróunin annars staðar að verða líkt og í Svíþjóð, að yngri kynslóðin fái tækifæri til að sjá keppnina í beinni útsendingu. Slíkt sé sums staðar erfitt þegar keppnin fari fram um miðja nótt.

Österdahl segir jafnframt að keppni næsta árs, sem haldin verður í Stokkhólmi dagana 10., 12. og 14. maí, verði sú ódýrasta frá aldamótum. Kostnaður verði ekki meiri en 125 milljónir sænskra króna, eða tveir milljarðar íslenskra króna.

Varðandi þema keppninnar segir Österdahl að síðast þegar keppnin var haldin í Svíþjóð, í Malmö 2013, hafi verið lögð áherslu á uppruna fólks, mannréttindi og að „byggja brýr“ milli fólks. „Þetta er jafn mikilvægt í dag og á næsta ári verður aftur lögð áhersla á jafnrétti.“ Hann lagði þó áherslu á að ekki ætti að túlka skilaboðin sem politísk.

Nítján lönd hafa þegar boðað þátttöku sína í keppninni, þeirra á meðal Ísland.


Tengdar fréttir

Leikvangur sem yrði í anda víkinga

Nemendur á fyrsta ári við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík kynna í dag hugmyndir sínar um nýjan þjóðarleikvang. Þjóðarleikvangur hefur verið mikið í umræðunni eftir jafntefli Íslands og Kasakstans á Laugardalsvelli á sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×