Viðskipti innlent

Munu ekki stöðva samruna við 365 og Konunglega kvikmyndafélagsins

Konunglega Kvikmyndafélagið og 365 miðlar renna nú saman.
Konunglega Kvikmyndafélagið og 365 miðlar renna nú saman.
Samkeppniseftirlitið hyggst ekki hafa afskipti af samruna 365 miðla og Konunglega kvikmyndafélagsins, sem rak Miklagarð og Bravó.

Þetta kemur fram í úrskurði Samkeppniseftirlitsins sem birtur var í gær. Eftirlitið segir að samruninn muni ekki hafa skaðleg áhrif á samkeppni, fjölræði og fjölbreytni í fjölmiðlum.

Í úrskurðinum segir að tekjur Konunglega kvikmyndafélagsins hafi gefið til kynna að hlutdeild félagsins á fjölmiðlamarkaði væri vart merkjanleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×