Innlent

Munu ekki fá úr því skorið hvort slökkt var á síma Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan fékk ýmsar mikilvægar upplýsingar fyrir rannsókn málsins með því að skoða gögn tengd farsíma Birnu.
Lögreglan fékk ýmsar mikilvægar upplýsingar fyrir rannsókn málsins með því að skoða gögn tengd farsíma Birnu. vísir/fréttablaðið
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, segir lögregluna hafa undir höndum gögn úr farsímum mannanna tveggja sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur.

Þau hafi hins vegar ekki komið að notum við að kortleggja ferðir rauða bílsins sem þeir höfðu á leigu á nokkurra klukkustunda tímabili laugardagsmorguninn 14. janúar svo lögreglan er litlu nær um hvert bílnum var ekið á milli klukkan 7 og 11:30.

Sími Birnu er ekki fundinn segir Grímur. Þá mun lögreglan aldrei komast að því hvort að slökkt hafi verið á símanum handvirkt eða hann orðið batteríislaus en á fyrri blaðamannafundi lögreglunnar mánudaginn 16. janúar kom fram að slökkt hefði verið handvirkt á honum.

Síðar sagði lögreglan að ekki væri hægt að fullyrða að það hafi verið gert en spurður nánar út í þetta segir Grímur að í raun muni aldrei fást úr því skorið hvort slökkt hafi verið á símanum eða hann orðið rafmagnslaus.

„Við munum ekkert vita það því það er ákveðið merki sem síminn sendir frá sér þegar maður slekkur á honum og hann yfirgefur kerfið. Það er svo í raun sama merki sem síminn sendir frá sér þegar hann er að verða rafmagnslaus þannig að þetta var misskilningur hjá okkur þarna í upphafi að það væri hægt að sjá þetta,“ segir Grímur.

Birnu var saknað í átta daga eða allt síðan aðfaranótt laugardagsins 14. janúar og þar til lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita eftir hádegi síðastliðinn sunnudag. Lögreglan staðfesti í gær að ljóst væri af rannsókn réttarmeinafræðings að Birnu hefur verið ráðinn bani en vill að öðru leyti ekki tjá sig um niðurstöður þeirrar rannsóknar.


Tengdar fréttir

Úlpa skipverja á Polar Nanoq þvegin um morguninn

Ekki liggur fyrir játning í máli tveggja skipverja sem sakaðir eru um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. Þriðji skipverjinn gaf sig fram við lögreglu vegna úlpu sem hann gleymdi í rauða Kia Rio bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×