Viðskipti erlent

Mun þessi furðulegi búnaður hjálpa fólki að sofna í flugvélum?

ingvar haraldsson skrifar
Búnaðurinn á að hjálpa fólki að sofna í flugvélum.
Búnaðurinn á að hjálpa fólki að sofna í flugvélum. mynd/PatentYogi
Flestir hafa á einhverjum tímapunkti átt í erfiðleikum með að sofna í flugvél. Oftar en ekki er þröngt á þingi, stutt er á milli sætaraða og plássið lítið.

Þetta vandamál hyggst flugvélaframleiðandinn Boeing leysa með fremur sérstæðum búnaði. The Telegraph greinir frá.

Um er að ræða bakpoka sem hægt er að opna og festa við farþegasætið. Eftir að búnaðnum hefur verið komið fyrir eiga farþegar að geta hallað sér fram og lagt höfðinu af fullum þunga í höfuðpúða og sofnað. Gat er í miðjum höfuðpúðanum ekki ósvipað og á nuddbekk.

Boeing hefur fengið einkaleyfi á uppfinningunni sem ber nafnið „Transport Vehicle Upright Sleep Support System“. Eins og er búnaðurinn einungis á teikniborðinu en Boeing vill ekkert gefa upp hvort farið verði út í framleiðslu á honum.

Vefsíðan PatentYogi bjó til myndband af því hvernig búnaðurinn myndi líta út ef farið verður í framleiðslu á honum og sjá má það hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×