Golf

Mun pabbahlutverkið hafa einhver áhrif á Dustin Johnson?

Johnson er einn högglengsti kylfingur PGA-mótaraðarinnar.
Johnson er einn högglengsti kylfingur PGA-mótaraðarinnar. vísir/AP
Það er sjaldan logmolla í kring um Dustin Johnson en þessi þrítugi kylfingur hefur gefið það út að hann eigi von á barni snemma á næsta ári með unnustu sinni, Paulinu Gretzky.

Johnson tók sér eins og frægt var orðið frí frá golfi í hálft ár fyrr á þessu ári og sagði í yfirlýsingu þurfa að einbeita sér að „persónulegum vandamálum“.

Vefsíðan Golf.com birti í kjölfarið frétt þar sem fullyrt var að Johnson hefði verið dæmdur í 6 mánaða keppnisbann frá PGA-mótaröðinni eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Talið er að Johnson hafi notast við fíkniefni á borð við kókaín og amfetamín.

Margir telja að samband hans við Paulinu Gretzky, sem er dóttir íshokkígoðsagnarinnar Wayne Gretzky, hafi ekki hjálpað Johnson í einkalífinu en Paulina er þekkt fyrirsæta sem hefur í gegn um tíðina oft komist í fréttir vegna skemmtanahalds sem farið hefur úr böndunum.

Johnson mun snúa aftur á golfvöllinn í byrjun febrúar á Farmers Insurance mótið sem fram fer á PGA-mótaröðinni en hver veit nema að foreldrahlutverkið hjálpi þessum hæfileikaríka kylfingi við að snúa til baka og einbeita sér að baráttunni á golfvellinum á meðal þeirra bestu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×