Innlent

Múlakot endurreist til minja um garðrækt, hótel og listamenn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Eitt elsta djásn íslenskra sveitagarða og eitt fyrsta sveitahótel landsins verða hluti gestastofu sem áformað er að opna í Múlakoti í Fljótshlíð. Fyrstu áföngum verður fagnað með ljósahátíð þar annaðkvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. 

Fjallasýnin úr Múlakoti er svipuð og Gunnar á Hlíðarenda hafði fyrir þúsund árum enda stutt á milli bæjanna austast í Fljótshlíðinni. Múlakot á sér merkan sess í menningar- og atvinnusögu landsins fyrir þá sök að fyrir um öld voru þar brautryðjendur að minnsta kosti á þremur sviðum; á sviði málaralistar, ferðaþjónustu og síðast en ekki síst á sviði garðræktar til sveita.

Nemendur Garðyrkjuskólans í vinnuferð í Múlakoti í fyrrasumar.Mynd/Múlakot.
Eigendur Múlakots, hjónin Sigríður Hjartar og Stefán Guðbergsson, stefna að því að menningarminjar staðarins verði opnaðar almenningi til sýnis. Þau gáfu gamla húsið og bæjartorfuna í því skyni til sjálfseignarstofnunar um verkefnið.

Garðurinn var kominn í órækt og tóku nemendur Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi að sér að taka hann í gegn. Hann er 119 ára gamall og eitt elsta djásn íslenskra sveitagarða. 

Sveitarfélagið Rangárþing eystra, Byggðasafnið á Skógum og sérstakt vinafélag koma einnig að málum. Mikið verk verður að gera upp gamla húsið, en í því var rekið eitt fyrsta sveitahótel landsins.

Minnisvarði um Guðbjörgu Þorleifsdóttur, sem hóf garðræktina árið 1897.Stöð 2/Einar Árnason.
Í Múlakoti var líka eitt fyrsta listamannaathvarfið, hér dvöldu langdvölum landskunnir listmálarar, eins og Ásgrímur Jónsson, Gunnlaugur Scheving og Jón Engilberts. 

„Flestir landslagsmálarar Íslands á tímabilinu frá 1915 til 1965 máluðu einhvern tíma í Múlakoti,“ segir Sigríður í viðtali í fréttum Stöðvar 2. 

Fyrstu áföngum í endurreisninni verður fagnað í garðinum klukkan tuttugu annaðkvöld með ljósakvöldi í ágústhúminu, í anda þess sem tíðkað var í garðinum fyrir miðja síðustu öld. 

„Vinafélag gamla bæjarins í Múlakoti styður við þetta með ráðum og dáð og það er í raun því til heiðurs, fólkinu í Vinafélaginu, sem að hátíðin er haldin, þó að sjálfsögðu séu allir velkomnir,“ segir Sigríður Hjartar, skógarbóndi í Múlakoti.

Gamla húsið er friðlýst.Stöð 2/Einar Árnason.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×