Erlent

Muhammadu Buhari réttkjörinn forseti Nígeríu

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Muhammadu Buhari (t.h.) ásamt Gooluck Jonathan, fráfarandi forseta.
Muhammadu Buhari (t.h.) ásamt Gooluck Jonathan, fráfarandi forseta. VÍSIR/EPA
Muhammadu Buhari hefur verið lýstur réttkjörinn forseti Nígeríu. Buhari hafði betur gegn sitjandi forseta landsins, Goodluck Jonathan, með 15.5 milljónum atkvæða gegn 13.3 milljónum.

Niðurstaðan markar tímamót í sögu Nígeríu enda hefur stjórnarandstaðan aldrei haft fulltrúar í forsetahöllinni.

Buhari fagnaði niðurstöðunni með stuðningsmönnumsínum í nótt.

Hann sagði Nígeríubúa hafa sýnt heiminum það að lýðræði væri sannarlega til staðar í landinu. Kosningaeftirlitsmenn hafa flestir lýst ánægju með kosningarnar, engu að síður hafa borist nokkrar tilkynningar um svik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×