Tónlist

Mugison sendir frá sér nýtt lag

Birgir Olgeirsson skrifar
Mugison.
Mugison. Fréttablaðið/Haraldur
Tónlistarmaðurinn Mugison birti óvæntan glaðning á Facebook-síðu sinni í kvöld. Um er að ræða lagið Lazing on sem hann segir vera fyrstu smáskífuna af væntanlegri plötu sinni.

Tæp fjögur ár eru liðin frá því platan hans Haglél tröllreið vinsældarlistum og seldist platan í rúmlega 30 þúsund eintökum á útgáfuári og var á þeim tíma sögð best selda íslenska platan í þrjátíu ár.

Því er ljóst að margir bíða spenntir eftir nýju efni frá kauða en nýja lagið má heyra hér fyrir neðan.



Lazing On flúkkunýtt lag, hvernig líst þér á? / Lazing On first single from my next album, how do you like it?

Posted by mugison on Tuesday, June 9, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×