Erlent

Mueller vill ræða við Trump á næstu vikum

Kjartan Kjartansson skrifar
Lögmenn Trump eru sagðir vilja koma því þannig fyrir að forsetinn þurfi aðeins að svara hluta spurninga Mueller (t.h.) í persónu.
Lögmenn Trump eru sagðir vilja koma því þannig fyrir að forsetinn þurfi aðeins að svara hluta spurninga Mueller (t.h.) í persónu. Vísir/Getty
Robert Mueller, sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins, ætlar að reyna að ræða við Donald Trump forseta á næstu vikum um ákvarðanir hans um að reka forstjóra alríkislögreglunnar FBI og þjóðaröryggisráðgjafa sinn. Rannsókn Mueller beinist meðal annars að því hvort að Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar.

Washington Post greindi frá þessu í kvöld. Blaðið hefur eftir heimildarmönnum sínum að starfsmenn Mueller hafi gefið það til kynna við starfsmenn Hvíta hússins að þeir hafi fyrst og fremst áhuga á brottrekstrum James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, og Michaels Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump og hvernig þeir komu til.

Einnig eru rannsakendurnir sagðir áhugasamir um stormasamt samband Trump við Jeff Sessions, dómsmálaráðherra sinn, sem hann hefur ítrekað gagnrýnt opinberlega. Rannsakendurnir vilji komast að því hvort að einhvers konar mynstur hafi verið í hegðun forsetans.

Allt þetta þykir benda til þess að Mueller og starfsmenn hans beini nú sjónum sínum sérstaklega að því hvort að Trump eða bandamenn hans hafi reynt að hindra framgang rannsóknarinnar eða draga úr henni tennurnar á annan hátt.





Trump lýsti meðal annars við Comey þeirri ósk sinni að hann gæti látið rannsóknina á Michael Flynn niður falla í fyrra.Vísir/AFP
Óttast um Trump ef hann þarf að mæta Mueller

Lögmenn Trump eru sagðir hafa lagt drög að tilboði til Mueller um að Trump svari sumum spurningum beint í viðtali en leggi fram skrifleg svör við öðrum.

Washington Post segir að sumir vinir og ráðgjafar Trump óttist afleiðingarnar ef hann þarf að ræða beint við Mueller og rannsakendur hans, meðal annars vegna þess hversu ónákvæmur forsetinn er í orðavali og hversu gjarn hann er að ýkja.

Fyrr í dag greindi New York Times frá því að starfsmenn Mueller hefðu rætt ítarlega við Comey í fyrra og við Sessions í síðustu viku.

Trump rak Comey í maí og sagði síðan að ástæðan hefði verið rannsókn FBI á meintu samráði framboðs hans við Rússa. Í kjölfarið var Mueller falið að taka við rannsókninni fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins.

Flynn var rekinn eftir innan við mánuði í starfi þjóðaröryggisráðgjafa eftir að á daginn kom að hann hafði logið að Mike Pence, varaforseta, um samskipti sín við rússneskan sendiherra. Pence var ekki sá eini sem Flynn laug að. Hann játaði að hafa logið að FBI um samskiptin í desember.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×