Fótbolti

MSN-tríóið komst allt á blað og Arsenal úr leik | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Neymar skorar fyrir Barcelona í kvöld.
Neymar skorar fyrir Barcelona í kvöld. vísir/getty
Arsenal er úr leik í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 3-1 tap gegn Barcelona í seinni viðureign liðanna í Katalóníu í kvöld.

Skytturnar frá Lundúnum áttu nær óvinnandi verkefni fyrir höndum eftir að tapa 2-0 á heimavelli og einvígið var í raun algjörlega búið eftir 18 mínútur þegar Neymar kom Barcelona í 1-0 eftir sendingu frá Luis Suárez.

Mohamed Elneny jafnaði metin í 1-1 með fallegu marki á 51. mínútu og gaf Arsenal smá von. Sú von varð að engu þegar Luis Suárez skoraði frábært mark fyrir Barceloan á 65. mínútu en hann klippti þá boltann snilldarlega í netið.

Lionel Messi innsiglaði svo 3-1 sigur Barcelona á 88. mínútu þegar hann slapp einn í gegnum vörn Arsenal og samanlagður 5-1 sigur Barcelona staðreynd.

Þetta er sjötta árið í röð sem Arsenal fellur úr leik í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar en þetta er níunda árið í röð sem Barcelona kemst í átta liða úrslitin. Börsungar eru ríkjandi meistarar í Meistaradeildinni en síðast tókst þeim ekki að komast áfram í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar árið 2007.

Arsenal er nú búið að kveðja tvær keppnir á fjórum dögum en síðastliðinn sunnudag tapaði liðið fyrir Watford í átta liða úrslitum enska bikarsins.

Barcelona er með átta stiga forskot í spænsku 1. deildinni, komið í úrslit spænska Konungsbikars og í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Neymar kemur Barcelona í 1-0 (3-0): Mohamed Elneny jafnar í 1-1 (3-1). Luis Suárez kemur Barcelona í 2-1 (4-1) Lionel Messi kemur Barcelona í 3-1 (5-1):



Fleiri fréttir

Sjá meira


×