MS sektað um 370 milljónir króna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. september 2014 11:40 MS ætlar að áfrýja niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Pjetur
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Mjólkursamsöluna (MS) um 370 milljónir fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að MS hafi beitt smærri keppinauta mismunun með því að selja þeim hrámjólk á 17% hærra verði en fyrirtæki sem tengd eru MS greiddu. Telur Samkeppniseftirlitið að þetta hafi haft hamlandi áhrif á samkeppni á markaði. „Verðmunurinn var til þess fallinn að veikja Mjólkurbúið Kú, sem er lítil mjólkurafurðastöð í einkaeigu, og stuðla að sölu á fyrirtækinu Mjólku til Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á árinu 2009,“ segir í tilkynningu. Brotin áttu sér stað í nokkuð langan tíma, eða að minnsta kosti frá árinu 2009 til ársloka 2013. Samkeppniseftirlitið telur brotið alvarlegt þar sem það tengist mikilvægum neysluvörum en þegar sekt MS var ákveðin var einnig horft til þess að um ítrekuð brot var að ræða. Fram kemur í fréttatilkynningu frá MS að niðurstaðan komi fyrirtækinu mjög á óvart og hyggst það vísa málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Mest lesið Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Viðskipti innlent Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Atvinnulíf Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Viðskipti innlent Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Viðskipti innlent Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Fleiri fréttir Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Sjá meira