Viðskipti innlent

MS og Matís rannsaka skyr og mysu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Meðfylgjandi mynd (frá vinstri):
Oddur Már Gunnarsson, Matís og Jón Axel Pétursson, Mjólkursamsölunni
Meðfylgjandi mynd (frá vinstri): Oddur Már Gunnarsson, Matís og Jón Axel Pétursson, Mjólkursamsölunni
Í dag undirrituðu fulltrúar Mjólkursamsölunnar og Matís fimm ára samstarfssamning um rannsóknir á skyrgerlum og mysu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MA.

Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Axel Péturssyni framkvæmdastjóra Sölu- og markaðssviðs MS er fyrirtækið mjög spennt fyrir þessu samstarfi sem fyrirtækin hafa náð samkomulagi um.

„Í skyrinu og íslenska skyrgerlinum leynast mikil verðmæti eins og við höfum við séð mjög greinilega út frá jákvæðri söluþróun okkar á skyri á Norðurlöndum, en salan á síðasta ári þar jókst um 85% og er nú í heildina orðin um og yfir 13.000 tonn,“ segir Jón Axel.

Hann segir að það sé full ástæða til að rannsaka frekar íslenska skyrgerilinn og sérstöðu hans og hvernig nýta megi hann til að gera skyrið að enn verðmætari útflutningsvöru en það er í dag.

„Að fá aðgang að því hæfa og góða fagfólki í vísindum og rannsóknum sem vinnur hjá Matís er því mjög verðmætt fyrir okkur og við bindum miklar vonir til framtíðar um þetta samstarf okkar,“ segir Jón Axel. „Enn fremur ætlum við í sameiningu að rannsaka betur eiginleika mysunnar og með hvaða hætti unnt er að gera meiri verðmæti úr henni heldur en gert er í dag.“

Að sögn Odds Más Gunnarssonar, sviðsstjóra viðskiptaþróunar Matís sér fyrirtækið mikil tækifæri í því að vinna með MS. Matís er leiðandi rannsóknarfyrirtæki í matvæla-,  líftækni- og umhverfisrannsóknum og fyrirtækið er mjög vel búið til að takast á við verkefni sem þessi.

„Mikil þekking er innan Matís á hvers kyns örverum og mun sú þekking nýtast vel til rannsóknar á skyri og skyrgerlum. Mysan er ekki minna áhugavert hráefni sem býður upp á mikla möguleika til aukinnar verðmætasköpunar. Með samstarfi Matís og MS skapast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar“ segir Oddur Már.

„Samstarfið við MS fellur auk þess vel að grunngildum í starfsemi Matís en hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á að vinna að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu“, segir Oddur Már enn fremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×