Viðskipti innlent

MP banki selur MP Pension Fund Baltic

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
MP banki hefur selt dótturfélag sitt í Litháen, MP Pension Fund Baltic, til fjárfestingafélagsins Invalda LT AB. Söluverð er 3,3 milljónir evra, sem jafngildir um 508 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

MP Pension Fund Baltic er sérhæft lífeyrissjóðafyrirtæki í Litháen sem býður afurðir á sviði lífeyrissparnaðar þar í landi. MP banki stefnir ekki á frekari vöxt í Litháen, auk þess sem takmörkuð samlegð er í rekstri félaganna. Því var tekin stefnumarkandi ákvörðun um að selja félagið á þessum tímapunkti.

Seðlabanki Litháen hefur samþykkt söluna og mun Invalda LT AB taka við eignarhaldi félagsins í dag. Invalda LT AB er eitt af leiðandi fjárfestingarfélögum í Litháen og hefur félagið verið skráð í Kauphöllinni í Vilnius frá árinu 1995. Prime Investment var ráðgjafi MP banka við söluna.

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka segist stoltur af þeim árangri sem náðst hefur frá stofnun félagsins.  „Við erum mjög stolt af uppbyggingu MP Pension Fund Baltic og þeim árangri sem náðst hefur frá stofnun félagsins árið 2007. Í dag eru viðskiptavinir um 62.000 talsins og eignir í stýringu um 90 milljónir evra. Grundvöllur fyrir frekari vexti félagsins er því góður. Það hefur verið ánægjulegt að starfa með stjórnendum og starfsmönnum MP Pension Fund Baltic og við óskum nýjum eigendum alls hins besta við frekari uppbyggingu félagsins,“ segir Sigurður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×