Viðskipti innlent

MP banki og Straumur renna saman og taka upp nýtt nafn

Atli Ísleifsson skrifar
Bankinn mun starfa undir nýju heiti sem verður kynnt síðar.
Bankinn mun starfa undir nýju heiti sem verður kynnt síðar.
Stjórnir MP banka og Straums fjárfestingabanka hafa samþykkt áætlun um samruna félaganna og miðast samruninn við 31. desember 2014.

Í tilkynningu segir að samruninn sé háður samþykki hluthafafundar beggja banka, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. „Vonir standa til þess að nýr, sameinaður banki hefji starfsemi með haustinu. Bankinn mun starfa undir nýju heiti sem verður kynnt síðar.“

Skipting hlutafjár í hinu sameinaða félagi verður þannig að núverandi hluthafar MP banka hf. munu eiga 58,66 prósent af virku hlutafé en núverandi hluthafar Straums fjárfestingabanka hf. munu eignast 41,34 prósent af virku hlutafé.

„Sameining MP banka og Straums fjárfestingabanka hefur augljósan ávinning í för með sér fyrir hluthafa beggja félaga. Sameinaður banki verður með sterka stöðu á sviði fjárfestingabankastarfsemi og eignastýringar og mun horfa til frekari sóknarfæra á þeim sviðum,“ segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×