Fótbolti

Moyes vill þjálfa áfram á meginlandi Evrópu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David Moyes.
David Moyes. vísir/getty
Þó svo það hafi ekki gengið sem skildi hjá David Moyes með Real Sociedad þá vill hann fá annað tækifæri hjá liði á meginlandi Evrópu.

Moyes var rekinn frá Sociedad eftir 364 daga í starfi en þar áður var hann rekinn frá Man. Utd.

Hann er alls ekki að leita að liði á Englandi og vill frekar vera þar sem veðrið er skaplegra yfir veturinn.

„Þessi vera á Spáni hefur kveikt í mér. Ef rétta tækifærið kemur í stóru deildunum þá myndi ég klárlega hafa áhuga," sagði Moyes.

„Ég held að þessi reynsla á Spáni eigi eftir að hjálpa mér. Ég hef viðað að mér mikilli þekkingu og það á eftir að hjálpa mér í næsta starfi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×