Fótbolti

Moyes: Hef sagt Alfreð að stundum láta mörkin bíða eftir sér

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason spilaði vel í baskaslagnum en tókst ekki að skora.
Alfreð Finnbogason spilaði vel í baskaslagnum en tókst ekki að skora. vísir/getty
Alfreð Finnbogason hefur átt erfitt uppdráttar á fyrstu mánuðum sínum hjá Real Sociedad á Spáni, en hann á enn eftir að skora mark fyrir liðið.

Alfreð, sem varð markahæstur í hollensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð með 29 mörk, hefur byrjað þrjá leiki og komið inn á sjö sinnum í spænsku deildinni án þess að koma boltanum í netið.

„Ég hef sagt honum að stundum láta mörkin bíða eftir sér. Það vilja allir að mörkin detti inn strax, en aðalatriðið er sú vinna sem þú skilar fyrir liðið. Leikmenn sem leggja mikið á sig njóta alltaf virðingar,“ sagði Moyes við spænska miðla eftir 1-1 jafntefli Sociedad í baskaslagnum gegn Bilbao.

„Alfreð hjálpaði liðinu mikið í leiknum. Ég sá hversu mikið hann lagði á sig og hvernig hann hélt öðrum á tánum.“

„Ég er sannfærður um að hann mun skora fyrir okkur í framtíðinni. Það mikilvæga fyrir mig er samt að ég sjái hann vinna mikið fyrir liðið í hverjum leik eins og hann gerði gegn Bilbao,“ sagði David Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×