Fótbolti

Moyes: Ég er ánægður með Alfreð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason skoraði tvö mörk í gærkvöldi.
Alfreð Finnbogason skoraði tvö mörk í gærkvöldi. vísir/getty
Alfreð Finnbogason skaut Real Sociedad áfram í spænska konungsbikarnum í gærkvöldi þegar hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á B-deildarliðinu Real Oviedo.

Þetta voru fyrstu mörk Alfreðs fyrir baskaliðið síðan hann gekk í raðir þess, en hann varð markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

„Framherjar vilja skora mörk og ég er viss um að Finnbogason hafi notið þess að skora tvö mörk,“ sagði David Moyes, þjálfari Sociedad, á blaðamannafundi eftir leikinn.

„Hann hefði verið undir meiri pressu hefði hann ekki skorað. Hann fékk sín færi og ef framherjar fá færi þá skora þeir.“

„Það mikilvægasta er að við sköpuðum færi sem Finnbogason nýtti. Við lögðum mikið á okkur í þessum leik rétt eins og við gerðum gegn Athletic. Ég er ánægður með Alfreð,“ sagði David Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×