Fótbolti

Mourinho virkilega sáttur við sína menn

Mourinho lét til sín taka á hliðarlínunni í kvöld.
Mourinho lét til sín taka á hliðarlínunni í kvöld.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var að vonum í skýjunum með sína menn en þeir unnu öruggan 3-0 sigur á Schalke í kvöld.

"Fyrstu 15 mínútur leiksins voru erfiðar. Strákarnir bitu frá sér eftir tapið um síðustu helgi. Það var ekki hátt risið á mönnum eftir það tap. Strákarnir rifu sig upp og svona á að svara eftir að hafa tapað," sagði Mourinho.

"Cech varði frábærlega er við vorum aðeins einu marki yfir. Það hafði eðlilega áhrif. Það tóku samt allir við sér og varnarvinna liðsins var til fyrirmyndar."

Samuel Eto'o er loksins byrjaður að skora fyrir Chelsea og hann skoraði tvö flott mörk í kvöld. Eto'o fagnaði með Mourinho og þakkaði honum með því traustið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×