Enski boltinn

Mourinho var ekki boðið í brúðkaup Evu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eva gerir hér að Gary Cahill er hún var enn starfandi hjá Chelsea.
Eva gerir hér að Gary Cahill er hún var enn starfandi hjá Chelsea. vísir/getty
Fyrrum læknir Chelsea-liðsins, Eva Carneiro, gifti sig í London í gær.

Hún var rekinn frá Chelsea snemma á leiktíðinni og hefur í kjölfarið farið bæði í mál við Chelsea sem og Jose Mourinho, stjóra liðsins.

Það kom því ekkert sérstaklega á óvart að hvorki Mourinho né nokkur leikmaður Chelsea hafi verið viðstaddur brúðkaup hennar í gær.

Eva giftist þá Bretanum Jason De Carteret sem er pólfari og mikill útivistarmaður.

Sjá má myndir af brúðhjónunum hér.




Tengdar fréttir

Eva hjólar í Mourinho

Læknirinn Eva Carneiro ætlar ekki bara í mál við Chelsea því hún ætlar líka að stefna Jose Mourinho, stjóra félagsins.

Mourinho ætti að biðja hana afsökunar

Sú ákvörðun Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, að banna lækni Chelsea-liðsins, Evu Carneiro, að koma nálægt liðinu á æfingum, leikjum eða á hóteli liðsins, hefur vakið upp hörð viðbrögð á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×