Enski boltinn

Mourinho ósáttur með eiginkonu Benitez | „Ætti að einbeita sér að megrun eiginmanns síns“

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Benitez og Mourinho áttu margar rimmur á hliðarlínunni þegar Benitez var knattspyrnustjóri Liverpool
Benitez og Mourinho áttu margar rimmur á hliðarlínunni þegar Benitez var knattspyrnustjóri Liverpool Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, var ekki skemmt er blaðamenn spurðu hann út í viðtal sem tekið var við eiginkonu Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Real Madrid. Sagði hann undra sig á því að hún væri að eyða tíma sínum í hann, þess í stað gæti hún eytt tímanum í að sjá um megrun eiginmanns síns.

Montse Seara, eiginkona Benitez, sagði í viðtali í spænska miðla í gær að eiginmaður sinn væri orðinn vanur að þrífa upp skítinn eftir Mourinho en þetta er í þriðja sinn sem Benitez tekur við liði sem Mourinho hefur stýrt áður fyrr.

Mourinho minnti hana hinsvegar á það að hann hefði aðeins tekið einu sinni við liði beint úr höndum hans er Benitez tók við Inter 2010 en hann var rekinn sex mánuðum seinna. Gekk honum betur hjá Chelsea þar sem hann stýrði liðinu til sigurs í Evrópudeildinni en hann féll ekki í kramið hjá stuðningsmönnum liðsins og hætti hann því eftir eina tímabil sitt hjá félaginu.

Eftir tvö tímabil á Ítalíu sem knattspyrnustjóri Napoli tók Benitez við Real Madrid í sumar af Carlo Ancelotti en um er að ræða fyrsta starf Benitez á Spáni frá því að hann gerði Valencia tvisvar að spænskum meisturum á þremur tímabilum.

„Hún virðist vera eitthvað áttavillt. Í eina skiptið sem hann tók við liðinu mínu var hjá Inter þar sem hann eyðilagði besta lið Evrópu á sex mánuðum. Að hún skuli leyfa sér að tala um mig í þessum tón er ótrúlegt. Ef hún eyðir meiri tíma í að fylgjast með megrun eiginmanns síns hefur hún minni tíma til þess að tala um mig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×