Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir stíganda í árangri liðs síns og að tapið gegn Bayern München auki á áhuga hans að stýra liðinu á næstu leiktíð. Þá verði gerð önnur atlaga að Meistaradeildartitilinum.
Mourinho, sem unnið hefur Meistaradeildina með Porto (2004) og Inter (2009) á knattspyrnustjóraferli sínum, var brattur á blaðamannfundinum eftir að lið hans féll á dramatískan hátt úr keppninni að lokinni vítaspyrnukeppni gegn Bæjurum í gærkvöldi.
Töluvert hefur verið rætt um framtíð Mourinho í vetur og hugsanlega endurkomu hans í enska boltann. Enska félagið Chelsea, sem Mourinho stýrði á árunum 2004-2007, hefur verið nefndt sem líklegur áfangastaður en Mourinho segir sig og leikmenn sína eiga óunnið verk í Madríd.
„Það hafði mikla þýðingu að vinna Konungsbikarinn á síðustu leiktíð. Ef okkur tekst að klára deildina í ár hefur það einnig mikla þýðingu. Að komast í undanúrslit í Meistaradeildinni tvö ár í röð er heldur ekki slæmur árangur en við viljum meira," sagði Portúgalinn litríki.
„Ég hef trú á því að við getum enn bætt okkur sem lið og félagið getur einnig styrkt sig. Félög þurfa að aðlagast breyttum tímum. Stórkostleg bifreið á níunda áratugnum heldur ekki yfirburðum sínum að óbreyttu á tíunda áratugnum eða á 21. öldinni," sagði Mourinho og gaf í skyn að hann teldi breytinga þörf hjá félaginu. Þó hefur Mourinho fengið meira sjálfræði í starfi knattspyrnustjóra en flestir forverar hans í starfi.
Áttum skilið að vinna Mourinho taldi Real Madrid hafa átt sigurinn skilið í viðureign sinni við Bayern München. Hann sagði stöðuna erfiða þegar félag í harðri baráttu í deildinni í heimalandinu mætir liði sem getur einbeitt sér að Meistaradeildinni. Vísaði hann þar í útileik Real Madrid gegn Barcelona í spænsku deildinni um liðna helgi á sama tíma og Bæjarar gátu hvílt lykilmenn í sínum deildarleik.
„Ég lenti í því sama þegar Chelsea mætti Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Liverpool var 30 stigum frá toppnum og tefldu fram varaliði gegn Fulham á meðan Chelsea stillti upp sínu sterkasta liði í öllum deildarleikjum til að geta tryggt sér Englandsmeistaratitilinn," sagði Mourinho og benti á að hið sama gilti um Barcelona sem hefði dottið út gegn Chelsea.
Úrslitaleikur Bayern München og Chelsea fer fram laugardagskvöldið 19. maí á Allianz-leikvanginum í München, heimavelli Bæjara.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Það kemur í hlut Ítalans Nicola Rizzoli að sjá til þess að allt fari sómasamlega fram þegar Bayern München og Borussia Dortmund leiða saman hesta sína í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á Wembley á ...
Meira
Stuðningsmenn Bayern München voru fljótir að kaupa alla þá 45 þúsund miða sem voru í boði þegar félagð ákvað að bjóða sínu stuðningsfólki tækifæri til að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildarinnar ...
Meira
Borussia Dortmund tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr í þessari viku og það er gríðarlega mikill áhugi hjá stuðningsmönnum félagsins á miðum á úrslitaleikinn á móti Bayern München...
Meira
Bayern München sá til þess að Þjóðverjar eiga tvö lið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti með 3-0 sigri á Barcelona í kvöld. Bæjarar unnu einvígið 7-0 samanlagt.
Meira
26 ár eru síðan Barcelona tapaði bæði heima- og útileik sínum í útsláttarkeppni í Evrópukeppni í knattspyrnu. Andstæðingurinn var úr ólíklegustu átt, Skotlandi.
Meira
Bayern München vann 3-0 sigur á Barcelona í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Bæjarar unnu spænska risann 7-0 samanlagt í tveimur leikjum.
Meira
Bayern München er komið með annan fótinn í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 4-0 sigur á Barcelona í fyrri leik liðanna. Bayern þarf samt að komast í gegnum erfiðar 90 mínútur á Camp Nou í kvöld til...
Meira
Dramatíkin var allsráðandi þegar Real Madrid var hársbreidd frá því að snúa við vonlausri stöðu í undanúrslitaeinvíginu gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Meira
Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund, lék á als oddi á blaðamannafundinum eftir að lið hans tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Madríd í kvöld.
Meira
Cristiano Ronaldo náði sér engan veginn á strik í 2-0 sigri Real Madrid gegn Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn dugði ekki þar sem Dortmund vann fyrri leikinn 4-1.
Meira
Borussia Dortmund er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti í 16 ár þrátt fyrir 2-0 tap gegn Real Madrid í síðari leik liðanna á Spáni í kvöld.
Meira
Leikmenn Real Madrid hafa ekki gefið upp alla von um að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þeir mæta Dortmund í kvöld í seinni leik liðanna en Dortmund leiðir einvígið, 4-1.
Meira
Borussia Dortmund mætir á Santiago Bernabeu í kvöld með 4-1 forskot á Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Gott forskot en þjálfari liðsins, Jürgen Klopp, veit að hans menn verða að gæt...
Meira
Fyrri farmiðinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu verður gefinn út í kvöld en þá tekur Real Madrid á móti Dortmund. Það er verk að vinna hjá spænska stórliðinu eftir að hafa steinlegið, 4-1, í fyrr...
Meira
Real Madrid þarf að blása til sóknar þegar liðið tekur á móti Borussia Dortmund í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Meira
Leikmanna Real Madrid bíður risavaxið verkefni á morgun er liðið fær Dortmund í heimsókn í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Meira
Pólverjinn Robert Lewandowski skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld er hann varð fyrsti maður sögunnar sem skorar fjögur mörk gegn Real Madrid í Evrópuleik.
Meira